Í síðustu viku eldaði ég pastagratín í kvöldmat. Uppskriftin reyndist svo stór að hún dugði okkur í kvöldverð tvö kvöld í röð og í nesti fyrir tvo! Í hversdagsamstrinu, og sérstaklega þegar skutl á æfingar lendir á matartíma, þykir mér algjör lúxus að þurfa ekki að hafa meira fyrir kvöldmatnum en að hita upp frá deginum áður. Bragðið verður bara meira og betra þegar rétturinn hefur fengið að standa og það má alltaf hafa annað meðlæti fyrir þá sem vilja tilbreytingu.
Við borðuðum gratínið í nokkrum ólíkum útfærslum. Sumir fengu sér hvítlauksbrauð og tómatsósu með því á meðan ég hrúgaði parmesan yfir réttinn og fékk mér spínatsalat með fetaosti og balsamikgljá með. Súpergott!
Pastagratín – uppskrift fyrir 6-8 (eða jafnvel 10-12!)
- 400 g spaghetti
- 2 kúlur af mozzarella
Kjötsósan
- 400 g nautahakk
- 400 g hakkaðir tómatar í dós
- 400 g tómatmauk í dós
- 1 laukur
- 4 hvítlauksrif
- 2 tsk þurrkað oregano
- 2 tsk þurrkuð basilika
- 2 tsk paprikukrydd
- 1-2 tsk dijonsinnep (má sleppa)
- 1 msk sojasósa
- 1 msk balsamikedik eða sykur
- 1 grænmetisteningur
- smá chili explotion krydd eða sambal oelek
- salt og pipar
Sósa
- 5 dl sýrður rjómi
- 150 rifinn ostur
- 1 hvítlauksrif, pressað
Yfir réttinn
- 50 g rifinn ostur
Samsetning:
Setjið helminginn af sýrða rjóma sósunni í botninn á eldföstu móti (í ca stærðinni 25 x 30 cm). Setjið spaghettí yfir. Setjið hinn helminginn af sýrða rjóma sósunni yfir og leggið mozzarellasneiðar yfir. Setjið kjötsósuna yfir og leggið sneiðar af mozzarella yfir kjötsósuna. Endið á að setja rifinn ost yfir réttinn. Setjið í 200° heitan ofn í 20-30 mínútur.