Ég sá að það var beðið um uppskriftina að hummusnum sem ég var með á New York Times-brauðinu þegar ég var með chili con carne. Uppskriftin er sáraeinföld og því gott að eiga hana í handraðanum.
Það er yfirleitt tahini í hummus en þar sem ég á það aldrei til hef ég notað þessa uppskrift sem ég fann hjá Cörlu. Okkur þykir hún öllum góð og með nýbökuðu New Yorks Times-brauði er það gjörsamlega ómótstæðilegt. Það tekur enga stund að útbúa hummus og ef þú átt ekki matvinnsluvél er hægt að nota töfrasprota til að mauka hráefnin saman.
Hvítlaukshummus
- 1 dós kjúklingabaunir, vökvanum hellt af og baunirnar skolaðar
- 2 hvítlauksrif, afhýdd og gróflega hökkuð
- safi af 1 sítrónu
- 1/4 bolli ólívuolía
- 1 tsk cummin
- sjávarsalt
- 1/2 tsk cayenne pipar (ath. að hann er sterkur og því óvitlaust að byrja með minna magn og smakka til)
- paprikukrydd og/eða steinselja til skrauts
Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og maukið þar til blandan er slétt. Setjið í skál og skreytið með smá olívuolíu, papriku og steinselju.

