Amerískar pönnukökur

Amerískar pönnukökur

Ó, hvað ég elska helgarnar.  Ég elska að koma heim eftir vinnu á föstudögum með blóm til að setja í vasa, elska að gera föstudagspizzu með krökkunum, elska sjónvarpskvöldin okkar með fullum skálum af nammi, elska að fara upp í hreint rúm á föstudagskvöldum og ég elska langa helgarmorgunverði.

Amerískar pönnukökur

Ég myndi vilja byrja allar helgar á svona morgunverði. Amerískar pönnukökur með hlynsýrópi og smjöri (ójá, ég set bæði á pönnukökuna. Ég meina, af hverju að velja bara annað þegar bæði er best?), stökkt beikon og hrærð egg með salti, pipar og herbs de provence-kryddblöndu sem tengdó keypti handa mér á markaði í Frakklandi (ég veit, hún dekrar við mig). Á meðan enginn sér set ég smá meira hlynsíróp þannig að það leki yfir allt. Með þessu hef ég ískaldan ávaxtasafa með klökum.

Ein ábending, gerið vel af pönnukökunum svo það verði afgangur eftir morgunverðinn og hafið stærðina á þeim þannig að hægt sé að stinga þeim í brauðristina. Ég stafla þeim á disk og set plast yfir. Um kvöldið eru þær alltaf búnar. Krakkarnir elska að geta stungið sér pönnuköku í brauðristina yfir daginn og smurt með smjöri og osti.

Amerískar pönnukökur

Amerískar pönnukökur (uppskrift fyrir 4)

  • 3/4 bolli mjólk
  • 2 msk hvítvínsedik
  • 1 bolli hveiti
  • 2 msk sykur
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt
  • 1 egg
  • 2 msk brætt smjör
  • 1 tsk vanilludropar

Blandið mjólk og hvítvínsediki saman í skál og látið standa í 10 mínútur. Hafið engar áhyggjur af hvítvínsedikinu, þið eigið ekki eftir að finna bragð af því.

Blandið þurrefnum saman í skál. Blandið mjókur/ediksblöndunni, eggjum og smjöri saman í annarri skál og hrærið blöndunni síðan saman við þurrefnin. Hrærið þar til blandan er að mestu laus við kekkji en passið að ofhræra ekki deigið.

Látið deigið standa í 10 mínútur (ath. að það er þykkt, ekki þynna það). Eftir 10 mínútur verða komnar bólur í deigið, ekki hræra í því. Takið varlega ca 1/4 bolla af deigið og setjið á heita pönnu sem hefur verið brætt smá smjör á. Steikið þar til loftbólur myndast  og snúið pönnukökunni þá við og steikið á hinni hliðinni.

3 athugasemdir á “Amerískar pönnukökur

  1. á ekki hvítvinsedik ! get ég notað venjulegt edik ?…P.s frábær síða hjá þér..kv Gróa 🙂

    1. Æ, fyrirgefðu hvað ég svara seint. Ég sé að Hólmfríður er búin að svara þér, gott að við hjálpumst að hér inni 🙂 Hvítvínsedikið er notað til að gera mjólkina súra og gerir matarsódan mikið virkari. Ég hef ekki prófað að nota venjulegt edik en myndi halda að það sé í lagi.

  2. Þú ættir að geta notað venjulegt edik, t.d. eplaedik myndi áreiðanlega ganga líka og jafnvel sítrónusafi, þetta er væntanlega til þess ætlað að lyftiduftið virki betur.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s