Í gær fór ég til Kaupmannahafnar að hitta systur mína og litlu stelpuna hennar. Ég náði því aldrei að setja inn færslu en setti þó einhverjar myndir frá deginum á Instagram. Yndislegur dagur í alla staði.
Ég sagðist ætla að setja myndbandið af Eyþóri syngja í norræna partýinu hingað á síðuna en það gekk ekki. Ég gat hins vegar sett það á Facebook og ef þið hafið ekki séð það þá hvet ég ykkur til að kíkja. Hann er ótrúlegur!
Opnunarhátíðin var haldin hér í óperuhúsinu á sunnudagskvöldinu. Það var heilmikil upplifun og ekki skemmdi fyrir að hitta Loreen.
Eyþór tók sig vel út á rauða dreglinum.
Hann gaf eiginhandaáritanir.
Og viðtöl.
Við fengum vín og mat.
Og kampavín og franskar makkarónur í eftirrétt.
Það er stórmarkaður beint á móti hótelinu okkar og við förum þangað daglega til að ná okkur í drykki. Ef ég drykki kók þá myndi ég kaupa þessa 🙂
En hvað það er gaman að fá smá innsýn inn í stemmninguna 🙂 Góða skemmtun!