Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk

Það er mér sönn ánægja að geta boðið upp á gjafaleik í anda jólanna hér á blogginu. Mér þykir svo hátíðlegt að fara á jólatónleika og í ár gleðst ég yfir því að vinkona okkar, Hera Björk, sé bæði að gefa út jólaplötu og halda jólatónleika. Platan hennar, Ilmur af jólum II, er jafn yndisleg og Hera sjálf og ég veit að tónleikarnir verða ekki síðri. Á þeim hefur Hera fengið gestasöngvarana Eyþór Inga, Pétur Örn og Margréti Eir til liðs við sig ásamt 50 manna kór, gospelröddum og hljómsveit og því óhætt að segja að það er mikil tónlistarveisla í vændum.

Hera Björk

Ég stakk þeirri hugmynd að Heru um daginn að leyfa mér að gefa nokkrar jólaplötur frá henni hér á blogginu. Hún tók að vonum vel í það og vildi gera enn betur við ykkur og ákvað að gefa tvo boðsmiða á tónleikana með hverri plötu. Hera sem var á leið til Færeyja að syngja með Frostrósum rétt náði að árita diskana til ykkar áður en hún steig um borð í vélina.

Við ætlum að gefa þremur heppnum lesendum jólaplötuna, Ilmur af jólum, ásamt tveimur boðsmiðum á tónleikana 8. desember nk. Þú getur hlustað á brot úr lögunum af plötunni hér og lesið um tónleikana hér. Til að taka þátt í leiknum er nóg að setja nafn og netfang í athugasemd við þessa færslu. Ég dreg vinningshafa út á fimmtudaginn kemur.

419 athugasemdir á “Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

  1. Jà takk. Væri mikið til í ad fá plötuna hennar Heru og miða á tónleika – mundi taka með með dóttir mína 🙂

  2. Er nýfarin að lesa þetta blogg og omg þvílík snilld! Mér finnst bara allt í einu gaman að elda og já vikumatseðillinn er bara tær …! Takk fyrir 🙂

  3. Jii en þú sniðug og það væri sko ekki leiðinlegt að fá þessa jólaplötu ég á fyrri jólaplötuna og er hún alveg yndi .
    Jólakveðja
    María

  4. Já, takk. Mikið væri nú gaman að vinna plötuna hennar Heru og fara á tónleika með henni og þessu frábæra fólki 🙂

Færðu inn athugasemd