Tengdó sagði mér í gær að ein úr leikfimishópnum hennar hefði bakað þessa köku, sem ég gaf uppskrift að í Morgunblaðinu fyrir nokkrum vikum, og boðið leikfimishópnum upp á. Mér skilst að kakan hafi vakið slíka lukku að þær hafi viljað fá uppskriftina. Mér þótti svo gaman að heyra þetta að ég fer að sjálfsögðu beint í að setja uppskriftina inn fyrir þær.
Mér þykir þessi kaka stórkostlega góð og Malín dóttir mín gæti lifað á henni. Það er alveg óhætt að gera hana með dags fyrirvara því hún verður bara betri við það. Mér þykir kakan best köld úr ískápnum og ekki skemmir að hafa léttþeyttan rjóma með.
Ostakökudeig:
- 300 gr Philadelphiaostur
- 1 tsk vanillusykur
- ¾ dl sykur
Browniesdeig:
- 2 egg
- 100 gr smjör
- 2 dl sykur
- 3 msk kakó
- 2 dl hveiti
- ½ tsk lyftiduft
- 1 dl grófhakkaðar pekan- eða kasjúhnetur (gjarnan saltaðar)
„Fudge“glassúr:
- 40 gr smjör
- 1 msk mjólk
- 1 ½ dl flórsykur
- 2 msk kakó
- Kasjú- eða pekanhnetur sem skraut
Hitið ofninn í 180° og klemmið bökunarpappír fastan í botninn á 20 sm smelluformi.
Ostakökudeig: Hrærið saman Philadelphiaosti, vanillusykri og sykri. Leggið til hliðar.
Browniesdeig: Hrærið egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt. Setjið smjör og kakó í pott og hitið við vægan hita þar til smjörið er bráðnað og búið að blandast saman við kakóið. Hrærið smjörinu saman við eggjablönduna. Bætið að lokum hveiti, lyftidufti og hökkuðum hnetum saman við.
Látið helminginn af deiginu í botninn á forminu og sléttið úr því. Breiðið ostakökudeiginu varlega yfir þannig að það nái alveg út í kantana. Breiðið afgangnum af browniesdeiginu yfir. Bakið í neðri hlutanum af ofninum í um 30 mínútur. Látið kökuna kólna í forminu.
„Fudge“glassúr: Bræðið smjörið með mjólkinni í potti. Hrærið flórsykri og kakói saman við og látið blönduna sjóða við vægan hita í um mínútu. Breiðið glassúrinn yfir kökuna og skreytið með hnetum. Látið kökuna kólna í ískáp þar til glassúrinn hefur harðnað.