Eldsnemma í morgun flutti mamma inn til krakkana og við Öggi stungum af til London. Við erum búin að eiga frábæran dag hér og ná að borða á tveimur veitingastöðum sem við vorum búin að spotta út áður en við lögðum af stað.
Eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir á hótelherberginu gengum við upp Oxford street og á ítalskan veitingastað sem heitir Carluccio´s. Við fengum okkur bruschetta og „baby chicken“ með ruccola, sítrónu og ferskum parmesan osti. Þetta var góður matur en ekkert sem heillaði okkur upp úr skónum. Það breytti því þó ekki að staðurinn var skemmtilegur og það var gaman að borða þar. Það sem stóð upp úr voru þær albestu ólívur sem við höfum smakkað og við stefnum á að fara og kaupa meira af þeim áður en við förum heim.
Eftir að hafa rölt um Oxford street og verslað aðeins tók við smá afslöppun á hótelinu áður en við héldum á næsta veitingastað, Gourmet Burger Kitchen. Það var mjög skemmtilegur staður með æðislegum mat. Ég fékk mér hamborgara með beikoni og avokado og Öggi klassískan borgara. Með þessu fengum við þær bestu franskar sem við höfum smakkað, bæði venjulegar og rósmarín franskar, og hvítlauksmajónes. Þetta var æðislega gott og okkur langar báðum að fara þangað aftur.
Dagurinn endaði á að það var bankað á herbergishurðina okkar og komið inn með rauðvínsflösku í boði hússins. Þetta kom okkur svo á óvart að við héldum að það hefði verið ruglast á herbergi en svo var víst ekki. Flaskan var til okkar og við þökkuðum vel fyrir.
Ég ætlaði að setja inn uppskrift sem ég eldaði um daginn en er orðin stjörf af þreytu. Hún fær því að bíða betri tíma.
En gaman að fá svona brennheitar fréttir frá Lundúnum með þessum líka fínu myndum. Mér finnst alltaf Carluccio´s svo skemmtilegur staður, líf og fjör og fallegt umhverfi. Leiðinlegt ef gæðin á veitingunum hafa dalað. Vona að dagurinn í dag verði góður og skemmtilegur hjá ykkur.
Knús,
Malín
Gaman að lesa fréttir frá London! Mikið sakna ég Gourmet Burger Kitchen, þeir bjóða upp á besta súkkulaðisjeik í heimi, nammnamm:)