Gleðileg jól kæru lesendur. Ég vona að þið hafið átt góð jól með góðum mat og í góðum félagsskap.
Síðustu dagar fyrir jól voru ekki verið eins og við hefðum kosið þar sem Gunnar veiktist og hefur legið fárveikur síðan á fimmtudag. Ekki það skemmtilegasta rétt fyrir jól. Í morgun vaknaði hann þó öllu hressari, enda búinn að vera á sýklalyfjum í fjóra daga og fyrir löngu kominn með nóg af ástandinu.
Hefðinni samkvæmt var möndlugrauturinn í hádeginu á aðfangadag. Gunnar var lystarlaus og fékk tvær skeiðar af grautnum á diskinn sinn, bara til að vera með. Heppnin var þó með honum og hann fékk möndluna. Mér fannst hún ekki geta farið á betri stað.
Á Þorláksmessukvöldi setti Öggi upp nýtt ljós í borðstofunni. Mig hefur lengi langað í þetta ljós eftir danska arkitektinn Simon Karkov og mamma ákvað að gefa okkur það í jólagjöf. Það sem ég hafði hins vegar ekki áttað mig á er að ljósið kemur í 69 bútum sem þarf að pússla saman. Það má því segja að ljósið Norm 69 hafi verið jólapússlið í ár og líkt og önnur jól þá gat ég ekki hætt að pússla fyrr en því var lokið.
Ég átti afmæli tveimur dögum fyrir jól og fékk svo ótrúlega fallegar gjafir. Meðal annars bættist í Marimekkoskálasafnið mitt frá Ittala, mamma gaf mér rauðu skálina og Svanhvít systir hvítu frostuðu skálina. Mér þykja þessar skálar svo æðislega fallegar og setti strax sörur og kókostoppa í þær. Ég verð að muna að setja inn uppskriftina að kókostoppunum því þeir eru æði!
Enn fleiri Ittala vörur komu síðan úr jólapökkunum. Malín var svo sæt og var búin að kaupa handa okkur Kivi-stjaka. Ég átti nokkra stjaka fyrir og þessi fellur vel inn í safnið. Þess að auki fengum við tvenna túrkislitaða Kastehelmi stjaka og eina skál, bæði líka frá Ittala.
Strákarnir voru búnir að útbúa æðislegar gjafir handa öllum. Jakob saumaði svuntu handa mér og sat eftir síðasta daginn í skólanum til að klára hana. Hann ætlaði að bródera Ljúfmeti og lekkerheit á hana en náði því ekki. Gunnar smíðaði skeið handa mér og brenndi í hana mamma á skaftið. Þeir bræddu mömmuhjartað með þessum gjöfum, litu karlarnir mínir. Öggi fékk skurðbretti frá Gunnari og kertastjaka frá Jakobi sem hann hafði skrifað Nolli undir, því honum þótti það nafn passa músinni svo vel.
Gjöfin sem kom mér þó mest á óvart kom frá Ögga og krökkunum, nýr Iphone. Ég er heimsins versti símanotandi, týni símanum oft á dag og heyri aldrei í honum þegar hann hringir. Fjölskyldan bindur miklar vonir við breytta tíma með þessum glansandi flotta hvíta síma og ég hef þegar lofað að passa vel upp á hann. Full af spennu og tilhlökkun ákváðum við svo að koma honum í gang strax um kvöldið. Það fór þó svo að þegar Öggi ætlaði að setja hann upp fyrir mig þá passaði gamla simkortið ekki í hann. Eftir að hafa leitað ráða á netinu ákváðum við að sníða það til eftir kortinu úr símanum hans Ögga og láta síðan Global-hnífinn skera simkortið mitt til. Þetta fór þó ekki betur en svo að nú virka hvorugt kortið og við hjónin því bæði símalaus þar til verslanir opna á fimmtudaginn.
Núna er víst ekki lengur til setunnar boðið þar sem við erum á leiðinni í jólaboð. Ég ætla að enda þetta ruglingslega innlegg með uppskrift að ís sem mér þykir bæði jólalegur og góður.
Bismark ís
- 3 dl rjómi
- 3 eggjarauður
- 1 msk vanillusykur
- 3 msk flórsykur
- 2 dl mulinn bismarkbrjóstsykur
Skraut
- grófmulinn bismarkbrjóstsykur
Myljið bismarkbrjóstsykurinn í smáa bita.
Hrærið eggjarauður og flórsykur saman í skál þar til blandan verður ljós og létt.
Stífþeytið rjóma og vanillusykur í annari skál. Hrærið stífþeyttum rjómanum saman við eggjarauðublönduna með sleif og bætið bismarkbrjóstsykrinum út í.
Setjið blönduna í form og frystið í amk 5 klst áður en ísinn er borinn fram. Skreytið með grófmuldum bismarkbrjóstsykri.
Vá, þvílík ittala jól:-) Ekkert smá fínt allt saman og brjóstsykurísinn er dásamleg klassík!
Gleðileg jól kæra fjölskylda og batakveðjur til Gunnars ofurhlaupara 🙂
Gleðileg jól Svava mín, þetta er afskaplega girnilegur jólaís! Gaman að sjá þessar fallegu afmælisgjafir, ljósið er æðislegt! Og til hamingju með að vera orðin Iphone eigandi! 🙂 Vonandi er Gunnar orðinn stálsleginn! Jólakveðjur til ykkar allra.