Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk

Það er mér sönn ánægja að geta boðið upp á gjafaleik í anda jólanna hér á blogginu. Mér þykir svo hátíðlegt að fara á jólatónleika og í ár gleðst ég yfir því að vinkona okkar, Hera Björk, sé bæði að gefa út jólaplötu og halda jólatónleika. Platan hennar, Ilmur af jólum II, er jafn yndisleg og Hera sjálf og ég veit að tónleikarnir verða ekki síðri. Á þeim hefur Hera fengið gestasöngvarana Eyþór Inga, Pétur Örn og Margréti Eir til liðs við sig ásamt 50 manna kór, gospelröddum og hljómsveit og því óhætt að segja að það er mikil tónlistarveisla í vændum.

Hera Björk

Ég stakk þeirri hugmynd að Heru um daginn að leyfa mér að gefa nokkrar jólaplötur frá henni hér á blogginu. Hún tók að vonum vel í það og vildi gera enn betur við ykkur og ákvað að gefa tvo boðsmiða á tónleikana með hverri plötu. Hera sem var á leið til Færeyja að syngja með Frostrósum rétt náði að árita diskana til ykkar áður en hún steig um borð í vélina.

Við ætlum að gefa þremur heppnum lesendum jólaplötuna, Ilmur af jólum, ásamt tveimur boðsmiðum á tónleikana 8. desember nk. Þú getur hlustað á brot úr lögunum af plötunni hér og lesið um tónleikana hér. Til að taka þátt í leiknum er nóg að setja nafn og netfang í athugasemd við þessa færslu. Ég dreg vinningshafa út á fimmtudaginn kemur.

419 athugasemdir á “Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

  1. Væri sko til í miða og diskinn. Ég elska bloggið þitt og ég sem hef engan áhuga á að elda er farin að sjást meira í eldhúsinu með réttina frá þér. Mikil gleði hjá húsbóndanum sem eldar oftast….. Takk fyrir að vera með mér á „hliðarlínunni“ í eldamennskunni í gengum bloggið 🙂

  2. Gaman að fylgjast með þinni skemmtilegu matarbloggsíðu, ég hef eldað maaargar góðar uppskriftir frá þér. Það yrði dásamlegt að komast á þessa tónleika og fengi maðurinn minn að njóta þeirra með mér 🙂 🙂
    Kær kveðja,
    Bryndís Guðmundsdóttir
    bgdisa@gmail.com

Skildu eftir svar við Berglind Carlsen Hætta við svar