Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk

Það er mér sönn ánægja að geta boðið upp á gjafaleik í anda jólanna hér á blogginu. Mér þykir svo hátíðlegt að fara á jólatónleika og í ár gleðst ég yfir því að vinkona okkar, Hera Björk, sé bæði að gefa út jólaplötu og halda jólatónleika. Platan hennar, Ilmur af jólum II, er jafn yndisleg og Hera sjálf og ég veit að tónleikarnir verða ekki síðri. Á þeim hefur Hera fengið gestasöngvarana Eyþór Inga, Pétur Örn og Margréti Eir til liðs við sig ásamt 50 manna kór, gospelröddum og hljómsveit og því óhætt að segja að það er mikil tónlistarveisla í vændum.

Hera Björk

Ég stakk þeirri hugmynd að Heru um daginn að leyfa mér að gefa nokkrar jólaplötur frá henni hér á blogginu. Hún tók að vonum vel í það og vildi gera enn betur við ykkur og ákvað að gefa tvo boðsmiða á tónleikana með hverri plötu. Hera sem var á leið til Færeyja að syngja með Frostrósum rétt náði að árita diskana til ykkar áður en hún steig um borð í vélina.

Við ætlum að gefa þremur heppnum lesendum jólaplötuna, Ilmur af jólum, ásamt tveimur boðsmiðum á tónleikana 8. desember nk. Þú getur hlustað á brot úr lögunum af plötunni hér og lesið um tónleikana hér. Til að taka þátt í leiknum er nóg að setja nafn og netfang í athugasemd við þessa færslu. Ég dreg vinningshafa út á fimmtudaginn kemur.

419 athugasemdir á “Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

  1. Það væri æðislegt að komast á þessa tónleika. Ég elska fyrri jóladiskinn hennar. Hann er sá fyrsti sem fer undir geislann í desember.

  2. Ég er til í diskinn og tónleikana hjá frænku minni og hún er ekki bara frábær söngkona heldur líka frábær innan sem utan

  3. Spennandi. Ég væri sko til í að bjóða góðri vinkonu með á þessa tómleika og tala nú ekki um að njóta plötunnar á aðventunni og um jólin. Kv Unnur

  4. Það væri svo æðislegt að fá svona flottan vinning og ps. flott matarbloggsíða hjá þér! fletti nánast daglega uppá ljúfmeti til að ath. hvort það sé komin ný og girnileg uppskrift!!!

  5. Væri gaman vinna í þessum leik, myndi þá bjóða mömmu á tónleika á afmælisdaginn sinn 🙂

Skildu eftir svar við Ingibjörg Aldís Sigurðardóttir Hætta við svar