Ég veit að það er mánudagur en ég bakaði köku í tilefni dagsins og taldi mig hafa góða ástæðu til. Bloggið mitt er 2 ára í dag. Tveggja ára! Ef það gefur ekki tilefni til að baka köku þá veit ég ekki hvað.
Bloggið er eitt skemmtilegasta áhugamál sem ég hef á ævinni haft. Ég eyði helst öllum lausum stundum í það, þó það sjáist kannski ekki hér. Að lesa uppskriftir, plana matseðla, prófa mig áfram, misheppnast, heppnast, skrifa niður uppskriftir, taka myndir… allt tekur þetta sinn tíma og ég hef ánægju af þessu öllu. Meira en það, ég elska þetta. Fyrir utan bloggið er ég í fullu starfi og með þrjú börn, það er því líf og fjör alla daga vikunnar sem veldur því að suma daga gefst einfaldlega ekki tími til að sinna blogginu og mér þykir alltaf jafn leiðinlegt þegar svo er.
Bloggið væri ekkert án ykkar og það gleður mig inn að hjartarótum hvað þið eruð mörg sem kíkið hingað inn á hverjum degi. Ég man í byrjun þegar heimsóknirnar fóru í fyrsta sinn yfir 100 og mér þótti það svo merkilegt. Í dag skipta þær tugum þúsunda á degi hverjum og mig sundlar af tilhugsuninni einni saman. Þið eruð út um allan heim og bloggið hefur meðal annars fengið heimsóknir frá löndum eins og Venezuela, Qatar, Cambodia, Jordan, Mozambique, Kuwait, Nepal, Yemen og Aruba. Hverjir voru þar? Ég verð svo forvitin þegar ég sé heimsóknir frá framandi löndum.
Takk fyrir öll falleg komment og tölvupósta sem þið hafið sent mér á þessum tveimur árum. Þið hafið fegrað líf mitt með þeim og ég mun seint ná að lýsa því hversu vænt mér þykir um að þið gefið ykkur tíma til að senda mér kveðju ♥
Ég er áskrifandi af Bon Appetit fyrir nokkru einsetti ég mér að prófa alltaf að minnsta kosti eina uppskrift úr hverju blaði sem dettur inn um lúguna. Það gengur svona og svona en ég lúsles blöðin aftur og aftur. Ég elska þessi blöð. Í nýjasta blaðinu kallaði þessi uppskrift á mig, kannski vegna þess að ég er svo hrifin af sítrónum, hindberjum og pistasíuhnetum. Hún var því sjálfskrifuð sem uppskriftin sem yrði prófuð úr þessu blaði. Þessi kaka hefur allt og getur ekki klikkað. Mér þótti hún svo ljúffeng og við dásömuðum hana við hvern bita.
Sítrónukaka með hindberjum og pistasíuhnetum (uppskrift úr bon appétit)
- 1 3/4 bolli hveiti (250 g)
- 1 ½ tsk lyftiduft
- ½ tsk gróft salt
- 4 stór egg
- 1 1/4 bolli + 2 msk sykur
- 2 tsk vanilludropar
- 2 msk fínrifið sítrónuhýði
- 1 msk + 1/4 bolli ferskur sítrónusafi
- 3/4 bolli mild ólífuolía
- 1 bolli fersk hindber
- 3 msk hakkaðar ósaltaðar og óristaðar pistasíuhnetur
Hitið ofn í 175° og smyrjið 24 cm kökuform.
Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og leggið til hliðar. Hrærið egg og 1 bolla af sykri saman með handþeytara eða í hrærivél í 5 mínútur. Þá ætti blandan að vera orðin ljós og létt. Látið hrærivélina ganga og bætið vanilludropum og 1 msk af sítrónusafa saman við. Hrærið síðan olíunni smátt og smátt saman við. Hærið að lokum þurrefnum og sítrónuhýði varlega saman við. Setjið deigið í kökuformið og sléttið úr yfirborðinu. Setjið hindberin yfir, síðan pistasíuhneturnar og 2 msk af sykri. Bakið kökuna í 45-55 mínútur, eða þar til prjóni sem stungið hefur verið í kökuna kemur hreinn upp.
Á meðan kakan er í ofninum er 1/4 bolli af sykri og 1/4 bolli af sítrónusafa sett í lítinn pott. Látið suðuna koma upp, hrærið í og látið sykurinn leysast upp. Látið sítrónusýrópið kólna.
Þegar kakan er tilbúin er hún tekin úr ofninum og sett á grind til að kólna (ekki taka hana úr kökuforminu). Burstið sítrónusýrópinu yfir hana, notið allt sýrópið. Látið kökuna kólna alveg í forminu.
Ha? 350° í 40 – 45 mínútur, ég trúi því ekki… Er það ekki 350F
Úff nei, það á ekki að vera 350° heldur 175°! Takk fyrir ábendinguna 🙂
Til hamingju með árin 2,finnst yndislegt að fara á síðuna hjá þér fer að minnsta kosti einu sinni á dag 🙂 og þú ert ekkert smá dugleg að setja inn uppskriftir og við fjölskyldan njótum góðs af. Takk fyrir okkur
Það gleður mig að heyra – takk fyrir falleg orð ♥♥♥
Kæra Svava,
Hingað til hefur mér þótt alveg yndislegt að lesa bloggið þitt, fá hugmyndir og fara eftir uppskriftunum. Þú ert að gera alveg frábæra hluti í þessu bloggi. Takk fyrir mig!! 🙂
Æðislega gaman að heyra. Takk!
Þakka fyrir mig,búin að nýta mér margar góðar uppskriftir.
Æðislegt blogg hjá þér! Allar uppskriftirnar þínar eru til fyrirmyndar og höfum við fjölskyldan ekki annað en verið mjög ánægð með matinn.
Ég vildi hins vegar fá að vita hvort þú setur hinderin á botninn ? vegna þess að hér fyrir ofan stendur „Setjið hindberin yfir“.
Gaman að heyra Anna 🙂 Hindberin eru sett yfir kökuna en sökkva niður á meðan kakan er í ofninum. Veit ekki hvort það eigi að gerast eða ekki, en það kom þó ekki að sök 🙂
Hef skoðað mörg matarblogg og margar uppskriftarsíður en aldrei fílað neinar að ráði, EN svo sá ég þess síðu og bara VÁ !!! Ég elska að elda en var orðin eitthvað stöðnuð í eldhúsinu og komin með hálfgerðan leiða, en ég hef fundið eldunarástríðuna aftur með síðunni þinni og svo ég tali nú ekki um hvað hann ektameðurinn minn er glaður með alla þessa nýju rétti sem hann fær 😀 Allt svoo einfalt og þægilegar uppskriftir ! Takk kærlega fyrir góða síðu og keep up the good work 😀
Hæ Svava, mig langaði bara að þakka þér innilega fyrir að hafa þetta blogg. Ég er búin að fylgjast með því í að verða 2 ár núna og kann orðið loksins að elda almennilega haha!! Ég bý erlendis og því finnst mér svo þægilegt að kíkja hér inn og gera þessar íslensku uppskriftir. Takk enn og aftur og til hamingju með árin 2!
Ef þú setur smá hveiti yfir berin þá sökkva þau ekki.