Það styttist í helgina og ekki seinna vænna en að fara að huga að helgarmatnum. Sjálf er ég búin að borða fisk þrjú kvöld í vikunni og langar í eitthvað gott um helgina, eins og eflaust flestum!
Ég gerði fyrir nokkru síðan Sesar salat sem okkur þótti æðislega gott. Uppskriftina fann ég í bók Chrissy Teigen, Cravings, en sú bók er stútfull af girnilegum uppskriftum. Dressingin er súpergóð og hægt að útbúa með góðum fyrirvara því hún geymist í allt að 2 vikur í ísskáp. Ég hef þó ekki látið á það reyna, þar sem við verðum seint þekkt fyrir að spara sósurnar á þessu heimili. Hér var sósuskálin hreinsuð með síðustu salatblöðunum. Klikkgott!
Sriracha Sesar salat – lítillega breytt uppskrift úr Cravings (fyrir 4-6)
- kjúklingabringur, kryddaðar eftir smekk og eldaðar
- Romain salat (eða Iceberg), strimlað
- 1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
- 1 lítill rauðlaukur, sneiddur þunnt
- parmesan ostur
- maldon salt og pipar
Brauðteningar:
- 2 msk ólífuolía
- 4 hvítlauksrif, mjög fínhökkuð
- 1/4 tsk rauðar piparflögur (red pepper flakes)
- 1/2 tsk salt
- 1/4 tsk svartur pipar
- 12 þunnar sneiðar af snittubrauði
Hitið ofn í 180° og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír. Hrærið saman ólífuolíu, hvítlauk, rauðum piparflögum, salti og pipar. Raðið snittubrauðsneiðunum á ofnplötuna og penslið með olíublöndunni. Bakið þar til brauðið er gyllt og stökkt, það tekur um 11-12 mínútur. Takið úr ofninum og látið kólna.
Sriracha Caesar dressing (uppskriftin gefur um 2 bolla af dressingu)
- 1 bolli majónes
- 4 hvítlauksrif, pressuð
- 1½ bolli fínrifinn parmesan
- 2 msk ferskur sítrónusafi
- 1 msk Sriracha eða eftir smekk (byrjið með 1/2 msk og smakkið ykkur til)
- 1½ tsk Dijon sinnep
- 1 tsk Worcestershire sósa
- ¼ tsk maldon salt
- ¼ tsk nýmalaður pipar
Blandið öllum hráefnum saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Geymið í ísskáp þar til á að nota sósuna. Hún geymist í 2 vikur í lokuðu íláti.