Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Ég er hér enn þó það hafi ekki heyrst frá mér í heila viku. Við erum búin að vera í Svíþjóð og þó ég hafði ætlað mér að blogga þaðan þá fór það svo að ég leit aldrei hingað inn. Þeir sem fylgja mér á Instagram fengu þó daglegar uppfærslur.

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Við áttum yndislega viku í fyrrum heimabæ okkar Uppsölum. Það er alltaf svo góð tilfinning að koma til Svíþjóðar og það var erfitt að kveðja og halda aftur heim.

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Við náðum að nýta tímann vel og fórum m.a. tvær ferðir til Stokkhólms, út að borða, í bíó, hittum gamla vini, versluðum, sýndum strákunum dómkirkjuna í Uppsölum (sem er ólýsanlega falleg og ég fæ enn gæsahúð þegar ég hugsa um Luciutónleikana sem við fórum á þar ein jólin), fórum í risastórt leikland, á Vasasafnið, á Skansinn og nutum þess að vera með Unni, Friðrik og börnum.

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Ég fór næstum því að gráta þegar ég sá þetta fallega bökumót frá Höganäs í Ittala outlettinu og fór í alvöru að gráta þegar ég kom heim og sá að það hafði brotnað á leiðinni. Ég vona að ég eigi eftir að eignast það aftur. Þá mun ég baka pæ á hverju kvöldi sem ég mun bera fram með góðum ís eða rjóma.

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Það er alltaf mikil stemmning fyrir bókaútsölunum í Uppsölum. Þegar við bjuggum úti þá hófust þær á miðnætti og ég man eftir að hafa sent Ögga á miðnæturútsöluna með langan lista yfir matreiðslubækur sem ég varð að eignast. Núna vorum við svo heppin að útsölurnar byrjuðu daginn áður en við fórum heim. Við náðum að gera góð kaup og ég bind miklar vonir við nokkrar matreiðslubækur sem ég vona að eigi eftir að enda hér á blogginu. Meðal annars keypti ég bók með girnilegum pæuppskriftum sem hefðu notið sín vel í nýja forminu. Ég ætla samt ekki að gráta það meira…

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Ég held að ég bæti upp fyrir fjarveru mína með þessari köku sem ég er búin að vera svo spennt fyrir að setja á bloggið. Hún er svo æðislega góð að mér finnst þið verða að baka hana til að eiga með helgarkaffinu. Ég get eiginlega lofað að þið eigið eftir að falla fyrir henni. Hér kláraðist kakan upp til agna á svipstundu og verður klárlega bökuð aftur fljótlega.

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr (uppskrift frá Shutterbean)

Kaka:

  • 1 ½ bolli smjör
  • 1 ½ bolli sykur
  • 1 ½ tsk vanilludropar
  • 3 egg
  • 1 ½ bolli sýrður rjómi
  • 3 bollar hveiti
  • 1 ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk matarsódi
  • ¼ tsk salt
  • 1 bolli grófhakkaðar valhnetur
  • 1 ½ tsk kanil
  • ¾ bolli púðursykur
  • 2 msk vanilludropar
  • 2 msk vatn

Glassúr:

  • 1 ¼ bolli flórsykur
  • ½ bolli hlynsíróp (maple syrup)
  • 1 tsk vanilludropar

Hitið ofninn í 165°.

Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Bætið 1 ½ tsk af vanilludropum saman við og eggjunum, einu í einu og hrærið vel á milli. Hrærið sýrða rjómanum saman við. Sigtið hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt saman og blandið saman við deigið.

Hrærið saman valhnetum, kanil og púðursykri í annari skál.

Smyrjið formkökuform (passið að hafa það í stærri kanntinum) og setjið 1/3 af deiginu í botninn á því. Stráið 1/3 af hnetublöndunni yfir. Endurtakið þar til komin eru þrjú lög af deigi og hnetublöndu (endið á hnetublöndunni). Hrærið vanilludropum ov vatni saman í skál og dreifið yfir efsta lagið af hnetublöndunni.

Bakið kökuna í 80 mínútur eða þar til prjóni stungið í kökuna kemur hreinn upp. Kælið kökuna áður en glassúrið er sett á.

Glassúr: Hrærið saman flórsykri, hlynsírópi og vanilludropum þar til blandan er slétt. Setjið yfir kökuna og njótið.

6 athugasemdir á “Kaffikaka með valhnetum og hlynsírópsglassúr

  1. sæl og blessuð ég hef gaman af að lesa um eldamennskuna þína, er sjálf áhugamanneskja um mat og bakstur, en fyrst þú varst í Svíþjóð langar mig að spyrja þig um veitingahús í Stokkhólmi, bæði frekar fín og góð einfðld, erum að fara þangað núna í mars í tilefni afmælis og alltaf spurning um að finna veitingastaði sem standa undir væntingum og eru ekki allt of þung fyrir pyngjuna kv Sigurlaug

    1. Sæl Sigurlaug.
      Því miður get ég lítið leiðbeint þér þar sem ég hef lítið farið út að borða í Stokkhólmi. Ég hef þó heyrt að Smak på restaurangen (http://restaurangentm.com/) sé skemmtilegur staður og að Holiday sé með góðan mat á fínu verði (http://www.restaurangholiday.se). Vapiano er víst líka með góðan ítalskan mat (http://www.vapiano.se). Ég hef þó ekki borðað á þessum stöðum sjálf. Það er líka gott kaffihús í miðbænum sem heitir Vete-Katten (vetekatten.se). Þar gæti verið gott að setjast niður og fá sér kaffi og prinsessutertusneið 🙂
      Góða ferð og góða skemmtun í Stokkhólmi!

  2. Æi hvað það er leiðinlegt að fallega formið skyldi brotna! Við söknum ykkar ægilega mikið og Freyja Malín spyr á hverjum degi um „GunnaJakob sína“ 💕 Hlakka til að prófa þessa köku! Knús💜

    1. Ykkar er líka sárlega saknað og okkur dauðlangar að koma aftur fljótlega. Það hefur aldrei verið eins erfitt að fara frá Svíþjóð 💜

Færðu inn athugasemd