Síðasta helgin fyrir skólasetningu er runnin upp og haustið framundan. Mér þykir þetta einn af bestu tímum ársins, hálfgerð áramót þegar allt byrjar upp á nýtt. Best þykir mér þó að allt fer í rútínu á ný. Ég er svo mikil rútínumanneskja að það nær engri átt.
Við ætlum að njóta þessarar síðustu helgar sumarfrísins hjá krökkunum. Við fórum út að borða saman í gærkvöldi og í dag liggur leiðin í bókabúðirnar að kaupa skóladót. Öggi mun þeyta skífum í brúðkaupi í kvöld og við Malín ætlum að nýta kvöldið í að merkja skólabækurnar og horfa á stelpumynd.
Áður en dagurinn fer í gang hér á heimilinu nýti ég tímann í að blogga því mig langar svo að gefa ykkur uppskriftina af þessari ljúffengu bananaköku með súkkulaðibitum sem ég baka reglulega og fer afskaplega vel með helgarkaffinu. Kakan er fjölskylduvæn og fellur í kramið hjá öllum aldurshópum. Hún endist ekki lengi á borðinu, enda svo sem ekki ætluð upp á punt.
Bananakaka með súkkulaði og hnetusmjöri
- 5 dl hveiti
- 3/4 tsk matarsódi
- ½ tsk salt
- 3 þroskaðir bananar
- 1 dl hnetusmjör
- 1 ¼ dl sykur
- 1 dl púðursykur
- 3/4 dl súrmjólk
- 75 g brætt smjör
- 2 egg
- 100 g hakkað suðusúkkulaði (eða það súkkulaði sem þú velur)
Hitið ofninn í 175°. Smyrjið formkökuform og klæðið með bökunarpappír.
Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál. Stappið bananana í annarri skál og blandið hnetusmjöri, sykri , súrmjólk, smjöri og eggjum saman við þá. Hrærið blöndunni saman í kekkjalaust deig. Bætið þurrefnunum saman við og hrærið saman þar til deigið er slétt. Hrærið að lokum súkkulaðibitunum í deigið.
Setjið deigið í formið og bakið í miðjum ofni í um 60 mínútur, eða þar til prjóni stungið í kökuna kemur þurr upp.
MIg vantar hnetusmjör, fer í búðina á eftir.
Svei mér þá, ég er komin með fráhvörf. Fer eitthvað að birtast fljótlega.
Þessi fallegu orð hlýjuðu mér í dag ♥ Takk.