Ég hef rekist ítrekað á uppskriftir af því sem svíar kalla krabbelurer upp á síðkastið. Krabbelurer eru klattar sem mætti segja að séu á milli þess að vera pönnukökur og kleinuhringir. Deigið er steikt á pönnu upp úr smjöri og að því loknu velt upp úr sykri og borðað með þeyttum rjóma og sultu. Hljómar vel, ekki satt?
Svíarnir bera þetta óhikandi á borð sem morgunverð og sælkerinn sem ég er þá ákvað ég að gera slíkt hið sama í morgun. Við byrjuðum þó morgunverðinn á eggjahræru og Finn Crisp og að því loknu fengum við okkur krabbelurer. Æðislega gott.
Krabbelurer
- 1 egg
- 5 msk sykur
- 2,5 dl hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk vanillusykur
- 3/4 dl mjólk
- smjör til að steikja úr
- sykur til að velta upp úr
Hrærið egg og sykur þar til blandan er létt. Bætið þurrefnum og mjólk saman við og hrærið deigið slétt.
Steikið á pönnu við miðlungshita upp úr vel af smjöri í um 3 mínútur á hvorri hlið (seinni hliðin gæti þurft styttri tíma). Veltið upp úr sykri. Berið fram með sultu og jafnvel þeyttum rjóma.
omægod omægod omægod! Þetta verð ég að prófa. Geri amerísku pönnukökuvöfflurnar þínar og þær eru alltaf jafngóðar – ég bæti við smá dashi af vanilludropum 🙂
Gerði þessar í kaffinu áðan! Þær eru rosalega góðar og vöktu mikla lukku!
Vorum með þessar í sunnudagstrídi mjög góðar 🙂