Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk

Það er mér sönn ánægja að geta boðið upp á gjafaleik í anda jólanna hér á blogginu. Mér þykir svo hátíðlegt að fara á jólatónleika og í ár gleðst ég yfir því að vinkona okkar, Hera Björk, sé bæði að gefa út jólaplötu og halda jólatónleika. Platan hennar, Ilmur af jólum II, er jafn yndisleg og Hera sjálf og ég veit að tónleikarnir verða ekki síðri. Á þeim hefur Hera fengið gestasöngvarana Eyþór Inga, Pétur Örn og Margréti Eir til liðs við sig ásamt 50 manna kór, gospelröddum og hljómsveit og því óhætt að segja að það er mikil tónlistarveisla í vændum.

Hera Björk

Ég stakk þeirri hugmynd að Heru um daginn að leyfa mér að gefa nokkrar jólaplötur frá henni hér á blogginu. Hún tók að vonum vel í það og vildi gera enn betur við ykkur og ákvað að gefa tvo boðsmiða á tónleikana með hverri plötu. Hera sem var á leið til Færeyja að syngja með Frostrósum rétt náði að árita diskana til ykkar áður en hún steig um borð í vélina.

Við ætlum að gefa þremur heppnum lesendum jólaplötuna, Ilmur af jólum, ásamt tveimur boðsmiðum á tónleikana 8. desember nk. Þú getur hlustað á brot úr lögunum af plötunni hér og lesið um tónleikana hér. Til að taka þátt í leiknum er nóg að setja nafn og netfang í athugasemd við þessa færslu. Ég dreg vinningshafa út á fimmtudaginn kemur.

419 athugasemdir á “Gjafaleikur í samvinnu við Heru Björk – leiknum er lokið.

  1. Vá…… þetta er ekkert smá flott hjá ykkur…. elska þetta blogg by the way…. svo góður og einfaldur matur 😀

  2. Það væri nú ekki leiðinlegt að hlusta á ljúfa jólatóna til þess að koma sér almennilega í jólagírinn 🙂

  3. Oh… Já, takk 🙂 mikið væri ég til í að bjóða mömmu minni með mér á jólatónleikana með Heru Björk 😉

  4. Úff mér finnst alveg æðislegt af þér að gera þetta 😀 Ég hef aldrei farið á jólatónleika og það væri alveg frábært að fá að fara 😀 já eða bara vinna diskinn og hlusta á hana heima í jólabakstrinum 😀

  5. Ilmur af jólum er í miklu uppáhaldi hjá mér. Er búin að kaupa mér miða á tónleikana en gæti vel hugsað mér að bjóða dætrum mínum með og þætti ekki leiðinlegt að eignast nýja diskinn 🙂

  6. Takk fyrir skemmtilegt og ekki síður girnilegt blogg 😉 Er mikið búin að nýta mér vikumatseðlana þína. Væri endilega til í að vera með í gjafaleiknum. Kv. Sigga (sigridur.sigurd@gmail.com)

  7. Ég væri meira en lítið til í að fara á tónleika með Heru Björk. Eitt af mínum uppáhalds jólalögum er Jólatími sem er á Ilmur af Jólum 1. Það væri gaman að eignast nýju plötuna og fara á jólatónleika með stelpunni minni 🙂

  8. Kíkti inn á þessa síðu út frá tengli hjá vinkonu minni. Ég sé að ég á klárlega eftir að kíkja mun oftar á þessa síðu 🙂 Frábærar uppskriftir og hef ég þegar prentað nokkrar út sem ég ætla að prófa á næstu dögum.
    Takk kærlega fyrir!
    Kveðja,
    Halla Björk
    hallabjork5@gmail.com

  9. Það væri Yndislegt að fá þessa Jólagleði beint í æð og takk fyrir frábæra síðu, hún er orðin mikið uppáhald á mínu heimili og þegar ég spurði son minn hvað eigum við að baka fyrir jólin, þá hugsaði hann sig ekki um og svaraði mér strax , mjúka kanilsnúðaköku frá Ljúfmeti og Lekkertheit , þannig að hún verður á mínum borði um jólin og ábyggilega fleiri en ein , an aftur kærar þakkir fyrir frábærar uppskriftir og njótið aðventunnar og jólanna

  10. Kærar þakkir fyrir góða síðu og girnilegaruppskriftir. Það væri nú ekki slæmt að fá þennan jólaglaðning frá þér, yndislegar báðar tvær þú og Hera Björk.

  11. Uppáhaldsíðan mín klikkar að sjálfsögðu ekki:D
    Væri ekki amalegt að komast smá út og á Jólatónleika með kallinum:)

Skildu eftir svar við katrín Sigurðardóttir Hætta við svar