Ég hef alltaf verið ferlega klaufsk þegar kemur að íslenskum pönnukökum og hef satt að segja aldrei komist upp á lagið með að steikja þær þunnar og fallegar. Framan af kenndi ég pönnukökupönnunni um en eftir að tengdamamma mín steikti fullkomnar pönnukökur trekk í trekk á henni neyddist ég til að horfast í augu við að klaufaskapinn yrði ég að skrifa á mig.
Það er mér til happs að okkur þykja sænsku pönnukökurnar ekki síðri og meira að segja örlítið betri en þær íslensku. Það er nefnilega ekkert mál að steikja þær því þær eru aðeins þykkari. Ég virðist svakalega flink þegar ég sný þeim með að henda þeim í loftið og grípa aftur með pönnukökupönnunni en það er þó ástæða fyrir þeim stælum. Ég næ ómöglega að snúa þeim öðruvísi án þess að rífa þær með spaðanum! Það er svo einfalt að gera þetta svona, þegar pönnukakan er orðin laus frá pönnunni þá er tímabært að snúa henni. Þegar seinni hliðin losnar þá er pönnukakan tilbúin. Pönnukökurnar eru þá brotnar saman og bornar fram með sultu og rjóma.
Sænskar pönnukökur (uppskrift frá Kokaihop)
- 2,5 dl hveiti
- 1/2 tsk salt
- smá vanillusykur
- 6 dl mjólk
- 4 egg
- 1 msk sýrður rjómi
- 3 msk smjör til að steikja upp úr (ég nota mun meira)
Blandið þurrefnum saman í skál. Bætið mjólk og sýrðum rjóma saman við og hrærið vel saman. Hrærið að lokum eggjunum í blönduna. Steikið upp úr smjöri.
3 athugasemdir á “Sænskar pönnukökur”