Ég minnist þess ekki að hafa áður eldað hörpuskel og það kom mér skemmtilega á óvart hvað það er einfalt að grilla hana. Þessi uppskrift er einföld en ó, svo góð. Hörpuskelinni er velt upp úr hvítlaukssmjöri, beikoni vafið utan um og grillteini stungið í gegn. Stökkt beikonið fer æðislega vel með mjúkri hörpuskelinni (beikon og fiskur er svo gott saman, þessi fiskréttur er annað gott dæmi um það) og að kreista sítrónu yfir eftir grillun gefur ferskt bragð á móti söltu beikoninu. Mér þykir þetta vera æðislegur forréttur sem er bæði fallegur á borði og ljúffengur undir tönn.
Beikonvafin grilluð hörpuskel
- 10 beikonsneiðar
- 1 poki hörpuskeljar frá Sælkerafiski (í pokanum eru 10 hörpuskeljar)
- 50 g smjör
- salt og pipar
- sítrónur
Byrjið á að forelda beikonið í örbylgjuofni. Setjið eldhúspappír á disk, helminginn af beikoninu yfir, annað lag af eldhúspappír yfir beikonið og seinni helminginn af beikoninu yfir. Endið á að setja eldhúspappír yfir beikonið og þrýstið á þannig að beikonið verði flatt. Hitið í örbylgjuofninum í 4 mínútur.
Látið hörpuskelina þiðna í ísskáp. Bræðið smjör og veltið hörpuskelinni upp úr því. Saltið og piprið. Vefjið beikonsneið utan um hörpuskeljarnar (1 beikonsneið á hverja hörpuskel) og stingið grillprjóni í gegn.
Hitið grillið á háum hita og lækkið það síðan í miðlungshita. Setjið spjótin á grillið með beikonhliðina niður og lokið grillinu. Látið grillast þar til beikonið er stökkt (tekur um 4 mínútur) og snúið þá spjótinu þannig að hin beikonhliðin snúi niður. Grillið áfram þar til sú hlið er líka orðin stökk. Grillið að lokum spjótin með hörpuskelina niður og grillið þar til hörpuskelin er stinn og ekki lengur gegnsæ (tekur um 4 mínútur). Grillið hörpuskelina bara á annari hliðinni.
Skerið sítrónur í tvennt og grillið þar til þær hafa fengið fallega grilláferð.
Berið hörpuskelina fram með grilluðum sítrónuhelmingum sem eru kreistir yfir hörpuskelina áður en hún er borðuð.
Hvar fæst svona eðalgrillgrind? Og takk fyrir allar góðu uppskriftirnar sem ég er dugleg að prófa.
Þessi er keypt í Danmörku fyrir mörgum árum en ég held að Hagkaup sé að selja þær (sé ekki betur á heimasíðunni en að svo sé). Þær eru frá Weber, ef það hjálpar 🙂
Ættir að kíkja í Grillbuðina á Smiðjuvegi í Kópavogi ég keypti grill þar um daginn og mér sýndist þeir eiga allt mögulegt á grillið líka 🙂