Það hefur myndast sú hefð hér heima að horfa saman á jólamyndir á aðventunni. Þetta eru notalegar stundir sem okkur þykir öllum vænt um og eru orðnar stór þáttur í jólaundirbúningnum. Undanfarin ár hef ég safnað saman lista yfir jólamyndir og mér datt í hug að setja hann hingað inn ef fleiri geta notið góðs af. Sumar þeirra horfum við á ár eftir ár, á meðan aðrar hanga óséðar á listanum. Þegar kemur að jólabíómundum vilja margir meina að Die Hard 1 sé besta jólamynd allra tíma en ég á erfitt með að taka undir það. Sjálf vel ég The Holiday, Love Actually eða Bridget Jones alla daga fram yfir Die Hard. Hvað krakkana varðar þá held ég að National Lampoon´s christmas vacation, Christmas with the Kranks og Home alone séu í uppáhaldi. Hér kemur listinn og hver mynd er með link á IMDb svo hægt sé að kynna sér þær betur:
- The Holiday
- Love Actually
- Bridget Jones
- Home alone
- Elf
- National Lampoon´s christmas vacation
- Deck the Halls
- You´ve got mail
- The Grinch
- Jack Frost
- Bad Santa
- Falling in love
- It´s a Wonderful Life
- Christmas with the Kranks
- The Family Stone
- Miracle on 34th street
- Four Christmases
Nú þegar líður að annarri aðventuhelginni eru eflaust einhverjir farnir að huga að helgarmatnum. Jakob gerði matarmikið nachos um daginn með nautahakki, ostasósu, salsa og guacamole sem var svo æðislega gott að ég má til með að benda á uppskriftina. Ég kaupi ferskt guacamole í Hagkaup og hef staðið í þeirri trú að það fáist bara á föstudögum en mér til mikillar gleði sá ég það í Hagkaup í Smáralind í gær. Það er því vonandi farið að fást daglega. Við borðuðum nachosið yfir sjónvarpinu og mér finnst alveg upplagt að bjóða upp á það yfir jólamynd annað kvöld. Mín besta tillaga er að hendast í sturtu strax eftir vinnu, fara í náttfötin og koma sér síðan vel fyrir í sjónvarpssófanum yfir jólamynd og með nachos í kvöldmat. Í eftirrétt er hægt að hafa nammi. Notalegheit í hæstu hæðum!
Nachos
1 pakki nautahakk
1 poki Santa Maria taco krydd
1 poki Tostitos (við vorum með eitthvað annað merki)
1 stk Tostitos ostasósa
1 krukka Santa Maria jalepeno (hægt að sleppa)
1 pk pizzaostur
1 stk sýrður rjómi 18%
1 stk Tostitos salsa
Guacamole