Í gærkvöldi bókaði ég gistingu í Ubud og við komum hingað seinnipartinn í dag. Við borðuðum hér á hótelinu okkar í kvöld og fengum æðislegan mat, sushi og nautakjöt. Svo ólýsanlega gott, bæði maturinn og að vera komin hingað saman. Þeir sem vilja geta fylgt mér á Instagram, þar set ég í Insta stories.
Ég er svo rugluð í dögunum hérna, þeir renna allir saman og það er enginn munur á mánudegi og laugardegi. Ég þurfti því að hugsa eftir til að átta mig á að það er föstudagur í dag og helgi framundan! Það er aldeilis við hæfi að setja þessa uppskrift inn fyrir helgina því þetta er fullkominn helgarmatur sem vekur lukku hjá öllum.
Tacos er jú bara svo gott og þessi útfærsla er æðisleg tilbreyting frá hinu hefðbundna tacos. Kjúklingurinn er svo bragðgóður og með hnetunum, avokadó, kóriander og sýrðum rjóma verður rétturinn ómótstæðilegur.
Mér þykir gott að þurrsteikja kasjúnhetur (og furuhnetur þegar ég er með þær) og hella síðan smá soja- eða tamarinsósu yfir þær í lokin þannig að sósan festist á hnetunum. Þetta poppar öll salöt upp og líka frábært snarl. Hér gerði ég þetta við hneturnar en rétturinn er góður þó því sé sleppt.
Ég tvöfaldaði uppskriftina fyrir okkur 5 og það kláraðist allt. Þetta var bara svo gott að það var ekki hægt að hætta að borða!
Tacos með tælenskum kjúklingi (uppskrift fyrir 3-4)
- 2 kjúklingabringur
- 1 kjúklingateningur (kraftur)
- 1 líter vatn
Marinering
- 1/2 dl appelsínudjús
- 1/2 dl Hoisin sósa
- 1 tsk hunang
- 1 kjúklingateningur (kraftur)
- 1 tsk hvítvínsedik
- 1/2 chillí, hakkað (hafið fræin með ef þið viljið hafa sterkt, sleppið þeim annars)
- 1 msk sojasósa
- 1/2 lime
Meðlæti
- laukur
- paprika
- tortillur
- ferskt kóriander
- avokadó
- vorlaukur
- kasjúhnetur (gott að þurrsteikja þær og hella síðan smá sojasósu yfir undir lokin)
- sýrður rjómi
Byrjið á að setja vatn í pott og láta suðuna koma upp. Bætið kjúklingateningi og kjúklingabringum í pottinn og látið sjóða við vægan hita í 15 mínútur. Á meðan kjúklingurinn sýður er marineringin útbúin. Hrærið öllum hráefnunum í marineringuna saman. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er hann rifinn niður og settur út í marineringuna.
Skerið lauk og papriku í strimla. Hitið olíu á pönnu og steikið þar til mjúkt og laukurinn hefur fengið smá lit, það tekur um 8-10 mínútur (passið að hafa ekki of háan hita). Takið af pönnunni og leggið til hliðar. Steikið kjúklinginn á sömu pönnu (óþarfi að þrífa hana á milli) þar til marineringin er orðin þykk og klístruð.
Hitið tortillurnar örlítið og berið fram með kjúklingnum, grænmetinu, kóriander, vorlauk, avokadó, kasjúhnetum og sýrðum rjóma.
Sæl 😉 Mikið er þetta girnilegt, í sambandi við appelsínudjúsinn sem er í uppskriftinni er þetta appelsínusafi eða appelsínudjús ?
Þetta er apelsínusafi, eins og t.d. Trópí 🙂
Sent from my iPhone
>
Takk 🙂