Þessi ís er eitt best geymda leyndarmál heimilisins og alveg öruggt kort að spila út ef ég ætla að slá í gegn í eldhúsinu án þess að hafa mikið fyrir því. Ísinn fékk viðurnefnið himneski ísinn frá Ögga því hann kallar hann aldrei annað. Mér finnst heimatilbúinn ís oft eiga það til að verða of harður og erfiður viðureignar. Þessi ís er ekki þannig því þó hann sé nýkominn úr frystinum er léttilega hægt að skera hann eða gera ískúlu úr honum. Hann er yndislegur í alla staði og ég held hreinlega að þetta sé besti heimagerði ís sem ég hef smakkað.
Þegar við vorum með kveðjuboðið áður en Malín hélt til Svíþjóðar gerði ég þennan ís í eftirrétt. Malín elskar eftirrétti og kann gott að meta í þeim efnum. Hún var þó ekki ein um að kunna meta þennan ís því öllum þótti hann alveg æðislegur.
Það er ekki hægt að gera einfaldari ís en þennan og það tekur ekki nema nokkrar mínútur að útbúa hann. Þetta er eiginlega of gott til að vera satt. Það þarf bara rjóma og niðursoðna sæta mjólk og síðan er hægt að bragðbæta ísinn eftir smekk. Þegar ég gerði hann fyrir kveðjuboðið átti ég súkkulaðidropa og 2 poka af m&m með hnetusmjöri sem ég setti út í og á síðustu stundu (algjör skyndiákvörðum sem kom þegar búið var að mynda innihaldið) ákvað ég að bæta líka hnetusmjöri í ísinn. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvað það var gott.
- 5 dl rjómi
- 1 dós niðursoðin sæt mjólk (ég keypti hana í Kosti)
Rjóminn er þeyttur þar til hann byrjar að mynda mjúka toppa. Hrærið áfram á lágum hraða og bætið niðursoðnu mjólkinni út í í mjórri bunu. Blandið vel saman. Bragðbætið eftir smekk og frystið í minnst 6 klukkutíma.
hæjj ég fór í kost í dag og spurði eftir þessari mjólk og þeir sögðu að þeir séu hættir að selja hana er eitthvað annað hægt að nota eitthvað í staðinn eða fæst hún annarstaðar(langar svo mikið að gera þennan ís) KV Katrín
Fæst hjá asísku vörunum í matarhluta kolaportsins.
Sael, hversu morg gromm innihelt dosin af nidursodinni mjolk ? by i frakklandi og thad eru til margar mismunandi staerdir og m.a. lika selt i tupum……
Drengurinn minn er med eggja ofnaemi og langar mig svo mikid til thess ad geta bodid honum upp a godan rjomais 🙂