Ég baka oft pizzasnúða og þykir gott að eiga þá í frystinum. Á sumrin kippum við þeim með okkur í lengri bílferðir eða hjólatúra og á veturnar þykir krökkunum gott að geta hitað sér þá eftir skóla eða æfingar.
Ég hef prufað margar uppskriftir að pizzasnúðum en þessi er sú sem stendur upp úr og okkur þykir langbest. Ég leyfi deiginu að hefast lengi og uppsker stóra og mjúka snúða fyrir vikið. Til að snúðarnir verða léttir og góðir finnst mér skipta mestu máli að hnoða deigið lengi (ég nota hnoðaran á Kitchen Aid hrærivélinni og læt hann hnoða í um 5 mínútur), nota eins lítið hveiti og ég kemst upp með og að leyfa deiginu að hefast lengi. Þó að baksturinn taki lengri tíma þá er samt vinnan við þá ósköp fljótleg og mér þykir því lítið mál að henda í snúðana þegar ég er heima.
Ég hef bæði prófað að setja pizzasósu og tómatsósu í snúðana og við erum öll sammála um að tómatsósan sé mun betri og ég held mig því alfarið við hana. Mér þykir heimabakað brauðmeti með geri yfirleitt ekki geymast vel og frysti því alltaf snúðana á meðan þeir eru enn heitir. Það er síðan lítið mál að leyfa örbylgjuofninum að hita þá aftur og þá verða þeir alltaf eins og nýbakaðir.
Pizzasnúðar
- 1 bréf þurrger
- 5 dl mjólk (37°heit)
- 3 msk ólívuolía
- 1 tsk salt
- 1 msk sykur
- 1 egg
- ca 14 dl hveiti
Fylling
- 200 gr skinka
- ca 1 dl tómatsósa
- 3 dl rifinn ostur
- 2 msk oregano
Til að pensla með
- 1 egg
- maldonsalt og oregano
Blandið saman þurrgerinu og smá af fingurheitri mjólkinni. Setjið afganginn af mjólkinni út í ásamt ólívuolíunni, saltinu, sykrinum og egginu. Setjið nánast allt hveitið saman við (passið að setja ekki of mikið) og vinnið deigið vel saman. Ég hnoða það í ca 5 mínútur í hrærivélinni. Látið deigið hefast á hlýjum stað í amk 30 mínútur.
Skerið skinkuna niður og raðið möffinsformum á ofnplötur.
Þegar deigið er búið að hefast er það lagt á mjölað borð og hnoðað létt saman. Skiptið deiginu í tvo hluta og fletjið hvorn hluta í aflanga köku. Smyrjið tómatsósu á og stráið skinkubitum, osti og oregano yfir. Rúllið deiginu saman og skerið hverja rúllu í ca 12-15 bita. Leggið bitana í möffinsformin og leyfið þeim að hefast í amk 30 mínútur.
Hitið ofninn í 225°. Penslið snúðana með upphrærðu eggi og stráið maldonsalti og oregano yfir. Bakið snúðana í miðjum ofni í 12-15 mínútur.
Takk fyrir frábæra síðu og fyrir deila skemmtilegum uppskriftum með okkur.
Langaði að nota tækifæri og mæla með salsa sósu í snúðana það er ansi gott líka.
Takk fyrir kveðjuna Fjóla. Salsa sósan hljómar mjög vel – ég ætla að prófa hana næst 🙂
Bestu kveðjur, Svava.
Notar þú hnoðarann eða látið í hrærivélinni?
Þetta á að vera notar þú hnoðarann eða káið í hrærivélinni 😀
Ég nota hnoðarann 🙂
>
Ég gerði pizzusnúðana í barnaafmæli um helgina og þeir slógu í gegn.
Við fjölskyldan erum mjög ánægð með síðuna þína, ég hef prófað fullt t.d. uppáhalds bananabrauðið, möndlukökuna, einfalda lasagnað, taco bökuna, mexíkönsku kjúklingabökuna, spaghetti bolognese og eggjakökuna. Síðan er á dagskrá að gera orange kjúklinginn og silviukökuna. Ég hlakka til að prófa annað ljúfmeti frá þér.
Snúðarnir eru frábærir en eiga það til að festast í pappamöffinsformunum. Einhver ráð við því Svava? Það hvarflar ekki að mér að nota annað en þessi pappírsform úr því það stendur í uppskriftinni!
hæ hefurðu prófað þessa uppskrift með vínsteinslyftidufti í stað gers?
Nei, það hef ég aldrei gert. Endilega segðu mér hvernig það kemur út ef þú prófar 🙂
Sammála með að þeir festist í pappírsformunum Sigga, ég átti ekki nóg af formum um daginn þannig að þeir fóru bara á smjörpappír og hugsa að ég geri það aftur á eftir þegar ég skelli í þá…
takk fyrir æðislega síðu, ég er búin að prófa nokkra rétti og þeir hafa allir slegið í gegn á mínu heimili, nú ætla ég að leggja í gerbakstur sem ég hef gert mjög lítið af 🙂
Æðislegir snúðar. Ég skipti uppskriftinni í helminga og gerði pizzasnúða og svo kanilsnúða. Mjög gott 😉
Ertu bara með venjulega pizzasósu?
Já, ég nota bara venjulega pizzasósu (t.d. frá Hunt´s).
Er muffinsformið must?
hæ hæ 🙂 hvað kemur ca mikið af snúðum úr einni uppskrift :)?
Hvað eru ca margir snúðar í uppskriftini ?