Bloggið 1. árs!

Hnetusmjörs- og súkkulaðivöfflur með bananarjóma

Mér þykir ótrúlegt að hugsa til þess að í dag sé litla bloggið mitt orðið eins árs. Á þessu fyrsta ári hefur bloggið vaxið og dafnað, daglegar heimsóknir sem voru í byrjum örfáar eru í dag um 15 þúsund á bestu dögum og það gleður mig inn að hjartarótum hvað þið hafið skilið falleg spor eftir ykkur.

Bloggið væri ekkert án ykkar og það gleður mig á hverjum degi að þið lítið við hjá mér á vafri ykkar um netið. Mér þykir svo gaman að skrifa ykkur og ég stend mig að því þegar ég borða góðan mat að hlakka til að setja uppskriftina á bloggið. Mér þykir gaman að deila með ykkur uppskriftum sem að mér þykja góðar og ég hef réttlætt kaup á nýjum matreiðslubókum með þeim rökum að við erum svo mörg sem náum að nýta uppskriftirnar. Pínu galið, en alveg dagsatt.

Hnetusmjörs- og súkkulaðivöfflur með bananarjóma

Mér þykir óendanlega vænt um allar kveðjur, tölvupósta og komment sem að þið hafið sent mér og þegar þið heilsið mér á förnum vegi fyllist ég af gleði. Það er svo gaman að fá andlit við bloggheimsóknirnar og ég dáist að ykkur sem hafið stigið fram og heilsað mér. Að gefa sér tíma í dagsins amstri til að staldra við og hrósa öðrum er aðdáunarvert og til fyrirmyndar.

Afmælinu ber að fagna, það er ekki spurning! Helst hefði ég viljað blása til veislu og bjóða ykkur öllum í köku og kaffi, en það væru eflaust öfgafull viðbrögð á eins árs bloggafmæli. Í staðin hófum við daginn á glettilega góðum vöfflum sem við nutum í sólinni úti á palli. Í tilefni dagsins fær síðan svo smá upplyftingu.

Hnetusmjörs- og súkkulaðivöfflur með bananarjóma

Öggi kom mér á óvart og gaf blogginu logo sem hann hafði hannað í afmælisgjöf. Þið sjáið það hér efst á síðunni, á nýju forsíðumyndinni. Hugsunin á bak við hönnunina er sú að logoið eigi að líta út eins og stimpill og stjörnuna setti hann efst því hann veit hvað ég er hrifin af þeim. Mér þykir hönnunin svo falleg hjá honum og logoið hefði ekki getað verið fullkomnara. Takk elskan.

Hnetusmjörs- og súkkulaðivöfflur með bananarjóma (uppskrift frá The sisters café)

  • 1 bolli fínmalað spelt
  • 1 msk lyftiduft
  • ¾ tsk salt
  • ½ bolli crunchy hnetusmjör
  • ¼ bolli sykur
  • 4 msk smjör, brætt
  • 2 egg
  • 1 bolli mjólk
  • ½ bolli grófhakkað suðusúkkulaði (ég notaði Konsum dropa frá Nóa Síríus)

Blandið hveiti lyftidufti og salti saman í skál.

Hrærið hnetusmjör og sykur saman í annarri skál þar til blandan verður mjúk og kremkennd, bætið þá bræddu smjöri saman við. Hrærið eggjum út í, einu í einu, og hrærið þar til deigið er orðið mjúkt og kekkjalaust. Hrærið þurrefnablöndunni varlega saman við og hrærið þar til deigið er kekkjalaust en passið að ofhræra ekki. Hrærið súkkulaðibitunum saman við.

Látið deigið standa í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið bakið úr því. Deigið þykknar örlítið við það. Bakið vöfflurnar á heitu vöfflujárni og berið þær fram með banarjóma.

Bananarjómi

  • 2 stórir bananar
  • ¼ bolli sykur
  • ½ tsk kanil
  • ½ tsk sítrónusafi
  • 1 bolli rjómi (1 peli)

Stappið bananana í lítilli skál og setjið sykur, kanil og sítrónusafa saman við þá. Þeytið rjómann í annarri skál. Blandið bananablöndunni saman við þeytta rjómann og berið strax fram. Mér fannst passlegt að nota helming af bananablöndunni út í rjómann – smakkið ykkur áfram.

28 athugasemdir á “Bloggið 1. árs!

  1. Vá hvað þetta er allt fallegt. Það eru ekki bara uppskriftirnar sem eru góðar, heldur eru skrifin alltaf svo góð og skemmtileg. Takk fyrir þetta allt Svava mín og innilega til hamingju.
    Stórt knús,
    þín Malín tengdamamma.

  2. Innilega til hamingju með 1. árs afmælið og flotta lógóið. Takk kærlega fyrir æðislegar uppskriftir og skemmtilegar sögur. Hlakka til að fylgjast með í framtíðinni.
    Kveðja Sigríður

  3. Innilega til hamingju með daginn og nýja blogg-útlitið, það er rosalega flott! Kærar þakkir fyrir að halda úti þessari síðu, við kærastinn og sonurinn erum alveg ægilega ánægð með hana. Það eru nokkrir réttir (ok frekar margir) komnir á uppáhaldslistann okkar, þökk sé þér! ;0)

  4. Til hamingju með 1 árs afmælið og takk fyrir allar æðislegu uppskriftirnar ég hef mikið notað þær. Takk kærlega.

  5. Til hamingju með árs afsmælið. Síðan þín er frábær, ég skoða hana á hverjum degi enda mjög ofarlega í favorites:) Mjög flottur nýji bannerinn efst og logoið.
    Bloggið þitt hefur allt sem til þarf, nýjar færslur mjög reglulega, fjölbreyttar uppskriftir, góðar og fallegar myndir og skemmtilegan texta.

    Haltu svona áfram. Hlakka til að fylgjast með áfram:)

  6. Frábær vefur Svava, ég mun klárlega nota hann mikið. Alltaf gaman að finna nýjar uppskriftir. Til hamingju með þetta allt saman. kv. Berglind Arndal

  7. Til hamingju með þessa flottu síðu, er nýlega búin að uppgötva hana og er búin að vera vafra hér og skoða. Hef bakað og og eldað aðeins af síðunni og líkað vel. Dáist alltaf af dugnaðinum í fólki sem gefur sér tíma í að setja svona uppskriftir fyrir okkur hin. Ekki skemmir svo fyrir þegar hún er svona smart og flott sett upp:)

  8. Innilegar hamingjuóskir með afmælið og takk fyrir allar þessar frábæru uppskriftir.
    Er með sjúka matarást á síðunni þinni og maginn tekur kipp í hvert skipti sem ný færsla er sett hérna inn.
    Hlakka til næstu ára 🙂

  9. Innilega til hamingju með ammælið 🙂 Alltaf jafn gaman að lesa þessa skemmtilegu og fallegu síðu og ekki skemmir fyrir hvað maturinn er alltaf góður!!
    Til lukku 🙂

  10. Innilegar hamingjuóskir með fyrsta árið (af mörgum) !

    Man svo vel þegar ég uppgötvaði síðuna þína í ágúst í fyrra. Var stödd upp í sumarbústað og ég fór yfir allar uppskriftirnar þínar og fannst hver annarri girnilegri. Síðan þá er ég búin að prófa margar góðar uppskriftir og eru þó nokkuð margar komnar í reglulega eldun/bökun hjá mér eins og t.d. möndlukakan, bananabrauðið með nutella, lasagnað með rjómakreminu, gúllassúpan með nautahakkinu, ferskjusúpan ofl ofl 🙂 …….úfff já og Twix bitarnir…..mmmmmmm

    Hlakka til að fylgjast áfram með þér og uppskriftunum þínum girnilegu 🙂
    kveðja
    Kristín

  11. Til hamingju með árs afmælið þitt þetta er frábær síða ég er búin að prófa margar
    uppskriftir frá þér og allar eru þær mjög góðar takk fyrir og haltu endilega áfram
    Takk takk

  12. Til hamingju með afmælið. Fer oft hér inn að skoða og búin að,prófa margar uppskriftir frá þér. Glæsilegt í alla staði og gaman að,fá að fylgjast með þessum mikla dugnaði þínum. Haltu áfram á sömu braut

  13. Elska síðuna þína, bjargar mér alltaf þegar ég er í vandræðum. Innilega til hamingju með bloggafmælið:-)

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s