Það er alveg hreint dásamlegur súpubar í Borgartúninu og þar sem ég vinn í sama húsnæði hef ég ósjaldan skotist þangað í hádeginu. Uppáhalds súpan mín er bara í boði á mánudögum en á þriðjudögum fæst stórgóð frönsk linsubaunasúpa sem mér heyrist vera í uppáhaldi hjá flestum.
Ebba Guðný, heilsugúrú og snillingur, gaf í þætti sínum Eldað með Ebbu uppskrift af linsubaunasúpu sem ég lét loksins verða af að elda um daginn, en franska linsubaunasúpan frá Súpubarnum var einmitt fyrirmynd þeirrar uppskriftar. Súpan er dásamlega góð! Ég bætti smá sellerý og cayenne pipar út í súpuna en því má auðvitað sleppa. Súpuna setti ég síðan í 4 box og átti nesti út vikuna. Stórkostlega gott!
Puy linsurósmarín og hvítlaukssúpa (uppskrift frá Ebbu Guðnýju)
1 stór blaðlaukur eða 2 litlir
1 1/2 dl grænar/brúnar/puy linsur
6-8 hvítlauksrif, pressuð
1 1/2 tsk. Himalaya- eða sjávarsalt
2 msk. lífrænn gerlaus grænmetiskraftur
1 krukka maukaðir tómatar
500 ml vatn
3-4 greinar ferskt rósmarín
1 1/2 msk. timjan (þurrkað)
4-6 gulrætur (ferð eftir stærð – 4 stórar eða 6 fremur litlar)
250 ml rjómi (1 peli)
1 stiki af sellerý
smá cayenne pipar
Graslaukur til að skreyta með í lokin og bragðbæta (má sleppa)
Skerið blaðlauk, sellerý og gulrætur smátt. Hitið smá vatn í botni á rúmgóðum potti og steikið grænmetið. Bætið hvítlauk saman við og síðan hráefnunum hverju á fætur öðru. Látið sjóða þar til baunirnar eru orðnar mjúkar (ég lét súpuna sjóða við vægan hita í um 30 mínútur). Berið fram með góðu brauði.
3 athugasemdir á “Puy linsurósmarín og hvítlaukssúpa”