Ískaldur og svalandi súkkulaðisjeik er alltaf viðeigandi og stórgóð leið til að lífga upp á hversdagsleikann. Við fengum okkur þennan í eftirrétt í vikunni og glösin voru ekki lengi að tæmast. Krakkarnir gáfu þumalinn upp og mig grunar að blandarinn okkar fái litla hvíld á næstunni.
Súkkulaðisjeik (2 glös) – Uppskrift frá Mitt Kök
- 4 dl mjólk
- 2 dl vanilluís
- 3 msk Nesquik
- 1 tsk vanillusykur
Mixið allt saman í blandara eða með töfrasprota. Hellið í glös og skreytið með þeyttum rjóma, súkkulaðispæni og súkkulaðisósu.
mmmm mér líst rosalega vel á þetta ! ætla að prófa í vikunni sem er að koma !
Hvar fékkstu þessi frábæru rör, þau eru æði? Ætla svo að prófa þennan sjeik einhvern tímann 🙂
Ég keypti rörin í Kaupmannahöfn! 🙂