Kjúklingasúpa með tómötum, karrý og epli

Kjúklingasúpa með tómötum, karrý og epliÞegar það er svona dimmt og kuldalegt úti þykir mér notalegt að kveikja á kertum og bjóða upp á góða súpu og brauð. Slíkar máltíðir gera lífið svo ljúft. Þessi súpa er þó einstaklega ljúf því hún er í senn æðislega bragðgóð, ofboðslega einföld og sérlega fljótgerð.

Það er upplagt að gera vel af súpunni og frysta í einstaklingsskömmtum því það er svo gott að geta tekið hana með í nesti eða gripið til hennar eftir langan dag.  Dásamleg máltíð sem vert er að prófa.

Kjúklingasúpa með tómötum, karrý og epli

Kjúklingasúpa með tómötum, karrý og epli (uppskrift frá Arla)

  • 300 g kjúklingabringur
  • 1 laukur
  • 1 epli
  • 1 msk karrý
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar (samtals 800 g)
  • 1 dl vatn
  • 2 grænmetisteningar
  • 2 ½ dl rjómi
  • smá sykur
  • salt og pipar

Skerið kjúklinginn í litla bita, fínhakkið laukinn og rífið eplið. Steikið kjúklinginn, laukinn, eplið og karrý í smjöri þar til mjúkt. Bætið tómötum, vatni, grænmetisteningum og rjóma saman við. Látið sjóða í 5 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Smakkið til með smá sykri, salti og pipar.

7 athugasemdir á “Kjúklingasúpa með tómötum, karrý og epli

    1. Nei, ekki einn líter heldur bara einn dl eins og uppskriftin segir 🙂 Með tómötunum og rjómanum fer vökvinn yfir einn líter og með kjúklingnum í dugar uppskriftin vel fyrir 5 manna fjölskyldu 🙂

      >

  1. Dásamleg súpa eins og allar uppskriftir frá þér sem ég hef prufað og þær eru orðnar nokkrar – takk fyrir mig 🙂

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s