Síðastliðinn vetur lærði ég skothelda eldunaraðferð á nautalund og ég hef ekki eldað hana á annan hátt síðan. Ég get lofað að lundin verður fullkomin í hvert einasta sinn!
Þar sem þetta er svo einfalt hef ég boðið upp á naut og bearnaise í flestum matarboðum sem ég hef haldið þetta árið. Ég er komin á þann tímapunkt að ég neyðist að finna mér nýjan go-to rétt því ég er nokkuð viss um að ég sé komin hringinn og búin að bjóða öllum upp á þetta.
Ég hef boðið upp á ýmiskonar meðlæti með kjötinu en þetta kartöflugratín er frábært með og mjög þægilegt því hægt er að undirbúa það með góðum fyrirvara. Stundum hef ég líka bara djúpsteikt franskar með eða grillað bökunarkartöflu. Ég hef alltaf bernaise sósu með nautalundinni og hér er æðisleg uppskrift en ef ég á að vera hreinskilin þá hef ég oft rennt við á Askinum og keypt sósuna þar (hún kostar sitt en er góð).
Eldunaraðferðin er súpereinföld. Byrjið á að krydda nautalundina með pipar og vefjið hana síðan þétt í plastfilmu, þannig að filman fari amk fimmföld utan um lundina. Setið lundina þar á eftir inn í 65° heitann ofn í 2 klst. Takið lundina út, saltið hana og brúnið snögglega á heitri pönnu eða grilli. Látið lundina hvíla aðeins áður en hún er skorin og borin fram.
Nú er sagt að það sé óhollt að nota filmuna utan um heitan mat?
Eins og Auður bendir á hér fyrir neðan þá er þetta svo lítill hiti að hann hefur engin áhrif á plastið.
inní ofn í plastinu sem sagt ?
þarf að prufa þetta 🙂
Já, hitinn er svo lítill að það er alveg óhætt að setja plastið í ofninn 🙂
skiptir engu máli upp á tímann að gera hvað lundin er þykk eða þung?
Það virðist ekki vera! Ég hef eldað þetta svo oft og fæ alltaf fullkomið kjöt úr ofninum 🙂 Kjötið er frekar lengi í ofninum þannig að það nær að eldast þó það sé þykkt.
Við notum þessa aðferð nær engöngu við bæði eldun á nauta-og hreindýrakjöti. Mjög þægileg aðferð og klikkar aldrei 🙂 En segðu mér… veistu hvort það sé hægt að nota sömu/svipaða aðferð við að elda kjúklingabringur? 🙂
Nei, en það væri spennandi að prófa að elda kjúklingabringur svona. Þarf að prófa það 🙂
já! Hlakka til að sjá færslu um það 😉 Er ekki nógu flink sjálf í eldhúsinu til að þora að prófa það 😉
Er virkilega holt að steikja í plasti, tekur ekki kjötið í sig efni úr plastinu.
Plastið er alls ekki steikt 🙂 Það fer bara inní ofn (bakstur) og hitinn það lítill að plastið heldur sér útaf fyrir sig 😉
Spurning hvort mætti setja bökunarpappír á milli uppá að forðast smit úr plastinu ??
Mér skilst að það sé engin hætta á smiti úr plastinu við þetta hitastig.
Skiptir engu máli blástursofn eða ekki 65°?
Prufaði þessa aðferð ,besta nautalund sem ég hef eldað hreinlega bráðnaði upp í manni.
Takk fyrir frábæran vef.
Takk fyrir að segja mér frá, svo æðislega gaman að heyra 🙂
>
ertu með ofnin á blæstri eða undir og yfir hita ?