Satay kjúklingasalat

Það er svo margt sem mig dreymir um að eignast fyrir heimilið. Listinn breytist með tíð og tíma en sumir hlutir eru fastir á honum. Það eru hlutirnir sem ég ætti að kaupa. Ég veit samt innst inni að ég á ekki eftir að gera það því mér þykja þeir eru flestir svo asnalega dýrir. En að dreyma kostar ekkert og ef ég safna þeim hér saman þá fegra þeir síðuna mína og þá á ég þá svolítið.

dagg

Vasinn Dagg frá Svenskt tenn þykir mér fallegasti vasi sem ég hef á ævi minni séð. Hann kostar formúgu og ég veit ekki til þess að hann fáist annars staðar en í Svíþjóð. Ég veit að ég á aldrei eftir að eignast hann því ég myndi seint kaupa mér blómavasa á 50 þúsund og hvað þá nenna að ferja hann hingað heim. En ó, hvað hann er samt fallegur.

musselmaletcollage

Musselmalet matarstellið frá Royal Copenhagen. Svo dásamlega fallegt og klassískt og dýrt.

Satay kjúklingasalat

Kubus kertastjakinn hefur staðið lengi á óskalistanum en valkvíðinn stoppar mig. Svartur eða hvítur? Ég get ekki ákveðið það.

vipp

Vipp baðvörurnar færu vel á baðherberginu hjá mér. Stundum ákveð ég að láta vaða og kaupa þær en átta mig síðan á því að það er kannski hálf galið að kaupa klósettbursta á 29 þúsund. Svo ég hætti við.

Day lampi

Curves lampinn frá DAY home. Ómæ hvað ég elska hann. Ég vona að hann eigi eftir að standa á stofuskenknum hjá mér einhvern daginn.

Bestlite-BL3-Black-300x300

Bestlite gólflampinn má líka flytja inn. Ég ætla þá alltaf að sitja við hann og prjóna eða lesa. Lífið verður örlítið fallegra við það.

louse poulsen

Og á meðan ég er að láta mig dreyma um ljós þá má Collage ljósið frá Louise Poulsen alveg hanga yfir borðstofuborðinu mínu. Ég heyrði einhvern tímann að það að horfa á það eigi að vera eins og að liggja á skógarbotni og horfa í gegnum tréin upp í himininn. Mér fannst það rómantískt og ljósið verða enn fallegra fyrir vikið.

GlobalKnives

Það sem hefur staðið lengi til að eignast og ég skil ekki af hverju ég hef ekki látið verða af eru fleiri Global-hnífar. Ég á einn og nota hann í allt sem ég geri í eldhúsinu. Á innkaupalistanum standa brauðhnífurinn og grænmetishnífurinn.

Satay kjúklingasalat

Nú finn ég að ég er að komast á flug og ætla því að láta staðar numið áður en þetta endar í vitleysu. Það sem er hins vegar laust við alla vitleysu er kjúklingasalatið sem ég gerði um síðustu helgi. Það er í algjöru uppáhaldi hjá krökkunum og fyrir ári síðan boðuðu þau til fjölskyldufundar þar sem þau óskuðu eftir að við værum alltaf með það á laugardagskvöldum. Ég lét það eftir þeim í margar vikur því það virðist sama hvað við borðum þetta oft, við fáum ekki leið á því. Mig grunar að margir eigi uppskriftina en ég ætla samt að birta hana sem hugmynd að góðri byrjun á helginni. Þetta er alltaf jafn gott og svo dásamlega einfalt.

Satay kjúklingasalat

Satay kjúklingasalat með kúskús

  • kjúklingabringur
  • Satay sósa ( mér þykir frá Thai choice langbest)
  • kúskús (án bragðefna eða með sólþurrkuðm tómötum)
  • spínat (eða annað gott salat)
  • rauðlaukur
  • rauð paprika
  • kirsuberjatómatar
  • avokadó
  • salthnetur
  • fetaostur

Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið á pönnu. Hellið satay sósunni yfir og látið malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

Sjóðið kúskús eftir leiðbeiningum á pakka. Mér þykir gott að setja hálfan grænmetis- eða kjúklingatening í vatnið.

Skerið papriku og rauðlauk í strimla, kirsuberjatómata í tvennt og avokadó í sneiðar.

Setjið spínat í botninn á fati. Dreifið úr kúskúsinu yfir og setjið kjúklinginn yfir kúskúsið ásamt hluta af sósunni (geymið restina af sósunni). Stráið papriku, rauðlauk, kirsuberjatómötum, avokadó og fetaosti ásamt smá af olíunni yfir. Dreifið að lokum salthnetum yfir. Setjið það sem var eftir af satay sósunni í skál og berið fram með.

11 athugasemdir á “Satay kjúklingasalat

  1. Þetta eru fallegir hlutir Svava mín! 🙂 Sérstaklega er ég hrifin af Dagg vasanum og auðvitað Global hnífunum, þeir eru frábærir og alveg ómissandi í eldhúsið! Salatið er æði, það er líka feykivinsælt á mínu heimili! 🙂

  2. Þetta er svo gott salat og fallegir hlutir sem þig langar í. Èg myndi pottþétt fá mér hvítan kjertastaka😍

  3. Bloggið þitt er þvílíkt að heilla mig, svo girnilegar uppskriftir og myndirnar svo fallegar:)
    Mig langar svo að forvitnast hvar þú fékkst þennan fallega glerdisk sem þú notar undir salatið, hef verið að leita af einhverjum svona svipuðum en ekki fundið ennþá.

    1. Kærar þakkir fyrir falleg orð Björg. Amma vinkonu minnar gerði glerdiskinn fyrir mig og ég veit því miður ekki hvar svona diskar gætu fengist. Spurning um að skella sér bara á glernámskeið? 🙂

  4. Æðislegt salat, ég hef aldrei fengist til þess að borða avokadó en prófaði og það passaði mjög vel með þessu. Frábært að eiga svona gott salat í ísskápnum yfir nokkra daga 🙂

Færðu inn athugasemd