Gratineraður fiskur á hrísgrjónabeði

Dagurinn er búinn að vera viðburðaríkur hjá smáfuglum heimilisins. Klukkan níu í morgun voru bræðurnir mættir í útvarpsviðtal fyrir bæði Leynifélagið og morgunútvarp Rásar 2 vegna Reykjavíkurmaraþonsins. Þeim var boðið að koma í viðtal því Gunnar ætlar að hlaupa 10 km til styrktar Neistans, félagi hjartveikra barna. Hann ákvað það fyrir ári síðan en ég held að það hafi enginn tekið hann alvarlega þá, í það minnsta ekki við.

Gunnar talaði reglulega um maraþonið í vetur og í byrjun sumars sagði hann að nú væri ekki lengur til setunnar boðið, hann yrði að fara að æfa sig. Mér fannst hugmyndin svo galin að ég reyndi hvað ég gat að tala hann af þessu, benti honum á að þetta væri svo löng vegalengd, að hann væri ekki vanur að hlaupa og ætti enga hlaupaskó en hann sagðist alveg getað hlupið þetta í gúmítúttunum sínum. Gunnar gaf sig ekki og það fór svo að Öggi fór með honum út að hlaupa og hlupu þeir 7 km. Við vorum alveg orðlaus yfir dugnaðinum og fórum með hann daginn eftir og keyptum hlaupaskó.  Síðan þá hefur Gunnar hlupið reglulega í sumar og tók þátt í Ármannshlaupinu í júlí þar sem hann náði mjög góðum árangi og hljóp 10 km á 54.28.

Nú styttist óðum í Reykjavíkurmaraþonið og ég verð að viðurkenna að ég verð fegin þegar það verður yfirstaðið. Ég er nefnilega hræðileg íþróttamamma, fer alveg á taugum og ímynda mér allt það versta sem getur komið fyrir. Ef einhvern langar að heita á þennan flotta strák minn og styrkja gott málefni þá er hægt að gera það hér.

En úr maraþoni í kvöldmatinn. Það er alltaf jafn gott að fá fisk í byrjun vikunnar og í dag kom Öggi við í fiskbúðinni á leiðinni heim og keypti glæsilegan þorsk. Ég gerði þennan fiskrétt úr þorskinum sem rann vel ofan í fjölskylduna.

Gratineraður fiskur á hrísgrjónabeði

  • hrísgrjón (ég sauð 1 1/2 bolla fyrir okkur átvöglin)
  • þorskur eða ýsa (ég var með 1 kg)
  • töfrakrydd (má sleppa)
  • 2,5 dl rjómi
  • 3 msk majónes
  • 2 tsk dijon sinnep
  • 2 tsk karrý
  • 50-100 gr ferskrifinn parmesan
  • rauð paprika
  • 1/2 blaðlaukur
  • 200 gr rifinn ostur

Hitið ofninn í 180°. Sjóðið hrísgrjón og leggið í botninn á eldföstu móti. Skerið fiskinn í sneiðar, leggið yfir hrísgrjónin og kryddið með salti, pipar og því sem þykir gott (ég notaði töfrakrydd frá Pottagöldrum). Hrærið saman rjóma, majónesi, sinnepi, karrý og parmesan. Smakkið til og saltið og piprið. Hellið sósunni yfir fiskinn og stráið fínskorinni papriku og blaðlauk yfir. Setjið að lokum rifinn ost yfir og bakið í ca 30 mínútur.

14 athugasemdir á “Gratineraður fiskur á hrísgrjónabeði

  1. Var að spá hvort ég megi nota léttmajones og matreiðslurjóma ? Og er Dijion sinnepið í krukku eða má nota sætt sinnep ? Hef aldrei notað dijon og þekki ekki bragðið af því ? Og Parmesanosturinn er hann keyptur niðurrifinn í poka ?
    Sorry ein með vandamál hérna 😉 Ætlaði bara að bjóða í mat og þá er svo leiðinlegt ef eitthvað klikkar 😉

    1. Ekkert vandamál, um að gera að spyrja! Ég myndi vera alveg óhrædd við að skipta yfir í léttmajones og matreiðslurjóma. Dijonsinnepið er í glerkrukku en fæst stundum í plasti. Ég nota parmesanost sem ég ríf sjálf niður.

      >

      1. Frábært takk kærlega fyrir svarið 🙂 Hlakka til að prófa fiski uppskriftirnar hinar uppskriftirnar þínar eru svo góðar þær sem ég hef prófað 🙂

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s