Ég veit ekki hvað ég hef fengið marga tölvupósta og fyrirspurnir um sambal oelek og ákvað því að svara þeim hér í sér færslu. Mér þykir þetta chilimauk svo gott og nota það mikið í eldamennsku. Það virðist þó sem þetta sé nokkuð nýtt hér á Íslandi og því margir sem þekkja ekki til þess.
Þegar ég bjó í Svíþjóð vandist ég á að nota sambal oelek í matargerð. Þegar við fluttum heim fann ég það hins vegar ekki í búðunum hér heima og lagði það þá í vana minn að byrgja mig upp í Svíþjóðarferðum mínum.
Það er ekki langt síðan ég byrjaði að sjá þetta í hillunum í Bónus, mér til mikillar gleði. Nú er ég ekki með á hreinu í hvaða fleiri verslunum sambal oelek fæst en það kemur frá Santa Maria og hlýtur því að fást víðar en í Bónus. Ég skal hafa augun opin og láta vita ef ég sé þetta á fleiri stöðum.
Ekta thailenskt sambal olek fæst í Thai búðinni á Hlemmi!
Það er nú svolítið spennandi að prófa það. Takk fyrir ábendinguna 🙂
Kveðja, Svava.
Nóatún seldi þetta mauk frá öðru merki í mörg ár, það er reyndar horfið úr hillunum núna og ég hef bara fundið það frá Santa Maria nýlega. Hef reyndar ekki leitað í Thai búðinni 🙂
Ég hef einmitt mikið notað sambal oelek í matargerð, nota það oft í staðin fyrir chili því það er svo oft að maður verður að kaupa heilan bakka af chili þegar mann vantar bara hálft! En sambal oelek fær maður alltaf í Asíubúðunum.
Sambal Oelek kynntist ég í Hollandi og veit ég ekki hvað þeir selja margar tegundir af henni..Myndi ráðleggja þeim sem fara þangað að kíkja á og taka með sér.;-) Er vön að nota sterkari en þessa sem er seld hér. En hún er samt mjög góð.
Mæli með Sambal Oelek sem fæst í Mai Thai á Laugavegi 118