Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

Ég vil meina að þessi súkkulaðibrownieskaka sé í raun jólaleg kaka, að minnsta kosti jólaleg súkkulaðikaka. Ástæðan fyrir því að mér þykir þetta er að hún er með bismark brjóstsykri og hvítu súkkulaði, sem mér þykir vera svo jólalegt. Hvað sem öðrum finnst þá get ég lofað að hún mun fara vel á hvaða jólaborði sem er og með þeyttum rjóma mun enginn geta staðist hana.

Ég bakaði þessa bismarkbrownies með hvítu súkkulaði fyrir saumaklúbbinn í gær og við kolféllum allar fyrir henni. Þar að auki tók 11 ára sjarmör svo djúpt í árina að segja að þetta væri besta kaka sem hann hafði smakkað. Hann hefði ekki getað gefið mér betra hól og nú hefur hann mig alveg í lófa sínum.

Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

Ef þið ætlið bara að baka eina köku fyrir jólin þá skuluð þið velja þessa. Geymið hana í ísskáp og þegar þið berið hana fram skuluð þið skera hana í bita, raða á fallegan disk og sigta flórsykri yfir. Það ætla ég alla vega að gera. Síðan má alls ekki gleyma rjómanum, hann fullkomnar dásemdina.

Uppskriftina fann ég í sænsku matreiðslublaði, Allt om mat. Ég rétt náði að mynda síðustu sneiðarnar sem enduðu klesstar saman í skál. Ekki láta þessa ógirnilegu mynd fæla ykkur frá kökunni því hún á svo mikið meira skilið.

Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

  • 4 egg
  • 4 dl sykur
  • 200 g smjör
  • 200 g suðusúkkulaði
  • smá salt
  • 2 dl hveiti
  • 2 msk kakó
  • 1 poki bismarkbrjóstsykur (150 g)

Hvítt súkkulaðideig

  • 2 egg
  • 2 dl sykur
  • 150 g smjör
  • 150 g hvítt súkkulaði
  • smá salt
  • 1 ½ dl hveiti

Hitið ofninn í 175°. Blandið eggi og sykri saman fyrir bæði deigin í sitthvorri skálinni. Passið að þeyta ekki blönduna heldur bara að hræra henni saman.  Bræðið smjörin í sitthvorum pottinum og setjið niðurskorið súkkulaðið út í. Hrærið varlega í pottunum og látið súkkulaðið bráðna í smjörinu. Bætið saltinu saman við.Hellið súkkulaðiblöndunum í eggjablöndurnar. Siktið hveiti og kakó saman við dökka deigið og hveiti saman við hvíta súkkulaðideigið. Hrærið í blöndunum þar til þær verða sléttar.

Leggið bökunarpappír í botninn á skúffukökuformi sem er ca 20×30 cm stórt. Fínmyljið helminginn af bismarkbrjóstsykrinum og grófmyljið hinn helminginn og leggið til hliðar.

Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

Setjið helminginn af dökka deiginu í formið og stráið fínmulda bismarkbrjóstsykrinum yfir. Setjið allt hvíta súkkulaðideigið yfir og síðan seinni helminginn af dökka deiginu. Endið á að strá grófmulda bismarkbrjóstsykrinum yfir.  Bakið í miðjum ofni í ca. 30 mínútur. Kakan á að vera svolítið blaut í miðjunni. Látið kökuna kólna og geymið hana helst í ísskáp.

Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

13 athugasemdir á “Bismarkbrownies með hvítu súkkulaði

  1. hljómar vel en hvernig er bismark aftur? bý ekki á íslandi svo ég get ekki farið út í búð og keypt svoleiðis? er hann eins og svona stafir sem eru á myndinni?

    1. Bismark er hvíti og rauði brjóstsykurinn með piparmyntubragðinu. Ég notaði þann frá Nóa Síríus en þú getur örugglega notað stafina sem eru á myndinni. Ég hef þó ekki prófað það.

  2. Mmmmm, ég gerði svona í eftirrétt á aðfangadagskvöld og þetta var hiiiimneskt – og allir sammála því 🙂
    Takk fyrir uppskriftina, frábær síða hjá þér!

  3. Takk fyrir æðislega síðu 😉 rakst á hana fyrir tveimur dögum síðan og er strax búin að baka tvær uppskriftir, sænska snúða og Bismarkbrownies, báðar rosalega góðar!!
    Enn og aftur takk fyrir mjög fallega og smekklega síðu 😀
    Kveðja,
    Magga

  4. Svava:: gerdi adan og ætla hafa i desert ikvöld en er audvitad buin ad smakka!,, Eg a eftir að “ spara mig“ til að eiga plass fyrir kökuna!!– nu verð eg að profa bismark isdesertinn. Sa fluffy marshmallowskrefið i icamaxi Sollentuna en hef ekki sed tad adur her i Sthlm. Skipuleggið svo ferð hingar allar saman aftur

Færðu inn athugasemd við Margret Hætta við svar

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s