Gleðilegan þjóðhátíðardag! Það eru eflaust fáir sem sitja við tölvuna í dag en þó eru alltaf einhverjir sem velja að nýta frídaginn í afslöppun heima við. Sjálf hefði ég ekkert á móti því. Það virðist þó ætla að rætast úr veðrinu og því kannski ráð að vera í fyrra fallinu á ferðinni til að nýta veðurblíðuna. Mér skildist á veðurfréttunum í gær að það ætti að rigna seinnipartinn. Þá er nú líka notalegt að koma heim og eiga góðgæti með kaffinu.
Það fer enginn svangur út í daginn hér því ég bjó til brauðtertu í gærkvöldi sem við ætlum að gæða okkur á í dag. Brauðtertan dugar vel sem kvöldmatur enda bæði með kjúklingi og beikoni, og minnir því einna helst á klúbbsamloku! Hún er matarmikil og dugar eflaust fyrir 10 manns.
Brauðterta með kjúklingi og beikoni (uppskrift úr Buffé)
- 200 g beikonstrimlar
- 1 grillaður kjúklingur
- 10 sólþurrkaðir tómatar í olíu
- 1 dl majónes
- 3 dl hreint jógúrt
- 1 dl graslaukur, skorinn fínt
- 1 tsk dijonsinnep
- 1/2 tsk salt
- smá svartur pipar
- 18 franskbrauðsneiðar
- 400 g philadelphia ostur, við stofuhita
- kirsuberjatómatar
- ruccola
Steikið beikonið á pönnu. Látið fituna renna af og leggið beikonið til hliðar. Hreinsið kjúklingakjötið frá beinunum og skerið í smáa bita. Hakkið sólþurrkuðu tómatana. Blandið sólþurrkuðum tómötum, majónesi, jógúrti, graslauk, sinnepi, salti, pipar, kjúklingi og beikoni saman í skál.
Skerið kanntinn af brauðsneiðunum. Leggið 6 brauðsneiðar á fat og setjið helminginn af fyllingunni yfir. Leggið aðrar 6 brauðsneiðar yfir fyllinguna og setjið það sem eftir er af fyllingunni yfir. Leggið síðustu 6 brauðsneiðarnar yfir. Setjið plastfilmu yfir og látið standa í ísskáp í 3-4 klst. Smyrjið philadelphia ostinum meðfram hliðunum og yfir brauðtertuna. Skreytið með ruccola og kirsuberjatómötum.
Úúúfff þetta er ekkert smá girnilegt 🙂
Hæhó,
Yrði þessi uppskrift eitthvað verri ef ég notaði bringur? Hversu margar heldurðu að ég þyrfti og væri betra að baka þær í ofni eða steikja á pönnu? 🙂
Þúsund þakkir,
Drífa
Fyrst vil ég þakka fyrir frábæra heimasíðu með æðislegum uppskriftum! Mig langaði að spyrja hvort það væri hægt að nota eitthvað annað staðinn fyrir sólþurrkaða tómata?
er þessi ekki sniðug á brunch hlaðborð!!
Jú, ekki spurning! Góð hugmynd hjá þér, ætla að muna þetta næst þegar ég verð með brunch 🙂
>