Í morgunn vökuðum við Jakob snemma og gerðum okkur góðan morgunverð. Hér vakna krakkarnir nánast aldrei fyrir hádegi lengur og því um að gera að grípa tækifærið þegar það loksins gefst. Eftir morgunmatinn fór Jakob að læra og ég að skrifa vikumatseðil. Ég er núna fyrst að detta almennilega í rútínu eftir jólin og víst ekki seinna vænna. Ég er með nokkrar góðar uppskriftir sem ég ætla að setja inn í vikunni en fyrst af öllu kemur loksins vikumatseðill!
Vikumatseðill
Mánudagur: Fiskur í ljúffengri sósu
Þriðjudagur: Quiche Lorraine
Miðvikudagur: Kálbúðingur
Fimmtudagur: Pulsupasta sem rífur í
Föstudagur: Klúbbsamloka með sweet chili majónesi
Með helgarkaffinu: Sænskar pönnukökur
Ein athugasemd á “Vikumatseðill”