Spaghetti bolognese

Þá er hversdagsleikinn tekinn aftur við og viðeigandi að bjóða upp á hversdagslegan rétt, spaghetti bolognese. Þetta er einn af þeim réttum sem ég elda hvað oftast og við fáum ekki leið á honum. Rétturinn breytist reglulega en þessi útgáfa hefur fengið að hanga með lengi og er sú sem ég nota oftast. Hér áður fyrr setti ég alltaf sveppi, zuccini, papriku og lauk út í hakkið og hellti síðan pastasósu yfir en krökkunum fannst ekki gott að hafa allt þetta grænmeti í sósunni. Ég ákvað því að hætta því og byrjaði að breyta aðeins uppskriftinni. Við erum öll sammála um að finnast rétturinn bara betri fyrir vikið.

Mér finnst lykilatriðið við góða bolognese sósu vera að bæta sýrðum rjóma út í hana ásamt smá hunangi. Síðan þykir mér Chili Explosion kryddið frá Santa Maria ómissandi. Þó að það hljómi sem hræðilega strerkt krydd þá er það frekar milt og það er ekki hægt að nota of mikið af því. Rjómasletta finnst mér alltaf til bóta og hika ekki við að nota ef ég á til.

Ég geri bolognese sósuna aldrei eftir nákvæmum málum (gerir það einhver?) en svona er hún nokkurn veginn.

Spaghetti bolognese

  • ca 500 gr nautahakk (einn bakki)
  • 1 laukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 krukka Dolmio pastasósa með extra hvítlauk (fæst m.a. í Bónus og Nettó)
  • 1 dós sýrður rjómi (ef ég á venjulegan rjóma þá nota ég hálfa dós af sýrðum rjóma og rjóma á móti)
  • 1/2 – 1 grænmetisteningur
  • ca 2-3 msk fljótandi hunang
  • smá sinnep (má sleppa)
  • chili explosion krydd frá Santa Maria
  • salt, pipar og paprikukrydd

Steikið hakkið á pönnu og þegar það byrjar að brúnast er lauknum bætt á pönnuna. Steikið áfram þar til laukurinn verður mjúkur og ef ég á papriku þá sker ég hana smátt og bæti á pönnuna í lokin. Kryddið aðeins með Kød og grill kryddi eða Lawrey´s seasoned salt og piprið. Bætið Dolmio pastasósunni á pönnuna ásamt sýrða rjómanum og rjómanum (ef þið eigið hann), 1/2 grænmetisteningi, hunangi, smá sinnepi og vel af chilli explosion kryddinu (ekki vera hrædd við það).  Leyfið að sjóða um stund og smakkið til, bætið jafnvel meiri krafti út í eða meira af chilli explosion kryddinu. Mér þykir líka gott að krydda aðeins með paprikukryddi. Ef sósan er of sterk bæti ég meiri rjóma eða sýrðum rjóma út í.

Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Þegar það er soðið er vatninu hellt af, spaghettiið sett í skál og væn smjörklípa látin bráðna yfir það.

Berið bolognes sósuna fram með spaghetti, ferskum parmesan osti og hvítlauksbrauði. Okkur finnst líka æðislega gott að hafa kartöflumús með en ætli ítalskar ömmur myndu ekki snúa sér við í gröfinni ef þær fréttu það.

13 athugasemdir á “Spaghetti bolognese

  1. Ótrúlegt hvað maður er alltaf að læra í lífinu. Hunang, sýrður rjómi og Dijon sinnep í Spaghetti Bolognese. Af hverju sagði enginn mér þetta fyrr? Hljómar ótrúlega vel.
    Kveðjur og knús frá Sverige

    1. Líst ótrúlega vel á þessa uppskrift, búin að prenta út og ætla að bjóða upp á þennan rétt í sumarbústaðarferð sem framundan er með barnabörnum. Með kveðju úr vesturenda Helga Pé

  2. Umm þessi uppskrift var prufuð af tengdó og stelpunum um helgina í sumó og sló algjörlega í gegn.

  3. Þessi réttur er æðislegur, auðveldur, fljótlegur og mjög góður! Börnin mín, 1 árs og 3 ára, hökkuðu þetta í sig 🙂

Færðu inn athugasemd