Hakkabuff með fetaosti

Hakkbuff með fetaosti

Í gærkvöldi bauð mamma okkur í lambalæri sem hún bar fram með kartöflugratíni og salati. Í eftirrétt hafði hún bakað danska eplaköku sem var, að sjálfsögðu, borin fram með rjóma (því mamma elskar rjóma…. og allt danskt). Ég gæti vel vanist því að vera boðin í svona veislu á hverjum mánudegi og þótti þetta þvílíkur hversdagslúxus. Ég nýtti tækifærið og fékk uppskrift að súkkulaðimúsinni hennar mömmu sem krakkarnir elska og eru alltaf að biðja hana um að gera. Ég ætla að setja hana hingað inn við tækifæri.

Núna ætla ég hins vegar að gefa uppskrift að ljúffengu hakkabuffi. Þessi hakkabuff mega gjarnan vera oftar á disknum mínum því mér þykja þau svo bragðgóð og ljúffeng. Það er eitthvað notalegt við þau og krakkarnir borða buffin alltaf af bestu lyst. Með soðnum kartöflum og sultu verða þau að dýrindismáltíð sem er einfalt að útbúa og allir kunna að meta.

Hakkbuff með fetaosti

Hakkabuff með fetaosti

  • 700 g nautahakk eða blanda af nauta- og svínahakki
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 egg
  • 2 tsk þurrkað oregano
  • 150-200 g mulinn fetaostur
  • salt og pipar
  • smjör til að steikja upp úr

Sósa

  • 2 msk smjör
  • 1/2 dl vatn
  • 3 dl rjómi
  • 2-3 msk kalvfond (eða grænmetisteningur)
  • maizena
  • salt og pipar
  • smá rifsberjahlaup (má sleppa)

Hakkbuff með fetaosti

Blandið hráefninu í buffin vel saman (mér þykir gott að setja allt í hrærivélina) og mótið stór buff úr þeim. Steikið buffin á pönnu upp úr vel af smjöri. Á meðan er ofninn hitaður í 125°. Þegar buffin eru tilbúin eru þau sett í eldfast mót og inn í ofn til að halda þeim heitum.

Steikarsoðið af buffunum er notað í sósuna. Þegar öll buffin hafa verið steikt er væn smjörklípa sett á pönnuna. Bætið vatni og rjóma á pönnuna og smakkið til með kalvfond, salti og pipar. Mér þykir stundum gott að setja smá af rifsberjahlaupi í sósuna en því má sleppa. Að lokum er sósan þykkt með maizena . Leggið buffin í sósuna og látið þau sjóða í sósunni um stund við vægan hita.

Berið buffin fram með soðnum kartöflum og sultu.

22 athugasemdir á “Hakkabuff með fetaosti

    1. Ég nota bara þann fetaost sem ég á að hverju sinni. Fetakubburinn er líka góður en ég á fetaostinn í kryddolíunni yfirleitt til þannig að hann er sá sem ég nota oftast.
      Kveðja, Svava.

  1. Ég er mikið fyrir hakkebøf sérstaklega á danska mátann (med løg). Eða panerað með köldum sósum og grænmeti. Ég eldaði hakkabuffið þitt í fyrradag. Ég þykkti reyndar sósuna með hveiti en ekki maizena, nota það lítið. Mjög gott buff. Hef ekki áður notað fetaost, en nota gjarnan afganga af alls konar brauðosti sem ég safna í frystinn (þegar maður er hættur að geta skorið hann í sneiðar).

    Mér finnst vefurinn þinn frábær! Ég prófaði líka bacon-spagettið þitt (a la Nigella) sem var gott, og á morgun ætla ég að prófa papriku- og kartöflusúpuna þína (til að nýta afganginn af feta ostinum) með NY-brauðinu .

    Kveðja, Tjörvi

  2. ætla að prufa þessa í kvöld. Kippti upp hakki og beint á síðuna til að finna eitthvað til að gera úr því 😉

  3. Mmmm hljómar vel! Ég geri svona bollur úr kalkúnahakki (398 kr 600gr í Fjarðarkaup) og nota mexicóost (kringlóttur)
    Það er líka ofsa gott og skemmtileg tilbreyting við allt þetta nautahakk
    kv. B

  4. Sæl. Mig langar að prufa þetta en dóttir mín er með eggjaofnæmi. Get ég sett eitthvað annað í staðin?

  5. Notaði grísahakk í stað nautahakks (kjötskortur), bætti við beikoni og setti ferskan graslauk og ferska steinselju í stað oreganos. Mjög ljúffengt.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s