Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósu

Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósuÞessi vika hefur að mestu snúist um samræmdu prófin hjá strákunum og við erum því sérlega glöð yfir því að helgin sé framundan. Það er greinilega aðeins of langt síðan ég var í 7. bekk og ég stend í mikilli þakkarskuld við alnetið og þær upplýsingar sem þar má finna þegar ég stend á gati. Ætli ég sé ein um að vera svona ryðguð? Æ, hvað ég eiginlega vona það þó það væri vissulega huggun í að vita af fleirum sem klóra sér í kollinum yfir kenniföllum og rómverskum tölum. Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósu

Þar sem það styttist í helgina ætla ég að koma með hugmynd að æðislegum helgarmat. Okkur þykir þessi réttur svo dásamlega góður að við borðuðum hann tvisvar í síðustu viku (alveg dagsatt!). Í annað skiptið buðum við mömmu í mat og hún dásamaði hann í bak og fyrir. Við höfum bæði borið réttinn fram með taglatelle og með ofnbökuðum kartöflubátum og salati. Bæði er mjög gott en mér þykir pastað þó standa upp úr. Það er bara eitthvað ómótstæðilegt við kjúklinginn með beikon/steinselju/parmesan hjúpnum og bragðmikilli soðsósunni sem pastað tekur í sig. Svoooo brjálæðislega gott og mín besta tillaga fyrir helgina.

Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósu

Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósu

  • 4 kjúklingabringur (um 700 g)
  • pipar og salt
  • um 160 g beikonstrimlar
  • 2 dósir sýrður rjómi
  • 1/2 sóló hvítlaukur
  • 1 msk Hunt´s Yellow Mustard
  • 2 msk sojasósa
  • 1-2 kjúklinga- eða grænmetisteningar (mér þykir best að blanda þeim)
  • smá cayenne pipar
  • handfylli af hakkaðri steinselju
  • handfylli af rifnum parmesan

Skerið kjúklingabringurnar í sneiðar og leggið í eldfast mót. Saltið lítillega og piprið. Setjið sýrðan rjóma, teninga, pressaðan hvítlauk, sinnep og sojasósu í pott og látið sjóða saman við vægan hita í nokkrar mínútur. Hellið sósunni yfir kjúklinginn. Steikið beikonstrimla á pönnu og stráið yfir. Stráið að lokum hakkaðri steinselju og rifnum parmesan yfir. Bakið við 175° í 40 mínútur.

Berið fram með tagliatelle, pipar og vel af ferskrifnum parmesan.Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósuKjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósuKjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósuKjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósu

 

14 athugasemdir á “Kjúklingur með beikoni, steinselju og parmesan í dásamlegri sinnepssósu

  1. Búin að prófa þennan, mjög góður. Kem klárlega til með að gera hann aftur, veit samt ekki hvort það verður aftur í þessari viku 🙂

  2. Gerði þessa í kvöld og hún sló í gegn! Ekkert smá gott.. ég notaði samt dijon sinnep í staðin fyrir sinnep! Mæli með þessari alveghundraðogtíuprósent ! 🙂 takk fyrir mig!

  3. Sæl Svava og takk fyrir frábæra síðu, nota hana mikið 🙂 Mig langaði að spyrja þig hvar þú kaupir þetta sinnep frá Hunt’s?

  4. Mjög góður réttur en ég gleymdi reyndar að kaupa sýrðan rjóma en notaði þess í stað rjómaost (þar sem ég lumaði á slíku í ísskápnum hjá mér sem betur fer) og kom bara mjög vel út 🙂 ég myndi þó sleppa því að salta kjúklinginn næst þar sem það er svo mikið salt í bacon sem og parmesan ostinum – notaðii líka Dijon sinnep en það kom ekki að sök – geri þennan klárlega aftur en sleppi saltinu.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s