Enn ein vikan að baki og tímabært að plana þá næstu. Mér líst vel á að hafa komandi viku einfalda og elda stóran skammt af chili con carne sem nýtist í tvær og jafnvel þrjár máltíðir. Þessi uppskrift er stórgóð og fer alltaf vel í mannskapinn hér heima. Kasjúhnetukjúklinginn er upplagt að hafa á föstudagskvöldi þar sem það tekur enga stund að reiða þann dásamlega rétt fram. Möndlukökunni fæ ég ekki leið á og mun hún fara stórvel með helgarkaffinu.
Eigið góða viku kæru lesendur ♥
Vikumatseðill
Mánudagur: Fiskréttur með blaðlauk og sveppum
Þriðjudagur: Chili con carne
Miðvikudagur: Afgangur af chili con carne, annað hvort settur í tortillur með gómsætu meðlæti eða á pizzu.
Fimmtudagur: Sveppasúpa og brauð
Föstudagur: Kasjúhnetukjúklingur
Með helgarkaffinu: Möndlukaka
Svo sniðugt , gaman að fá hugmyndir frá öðrum Takk